Back to results

Bifröst University

Markaðssetning Krispy Kreme á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar var að búa til og móta markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme á Íslandi. Tilgangur ritgerðarinnar var tvenns konar. Annars vegar var hann sá að aðstoða Krispy Kreme við að kynna fyrirtækið þar sem hlutfall þeirra sem þekkja vörumerkið á Íslandi er í kringum 50% og hins vegar að aðstoða Krispy Kreme við að stækka markhóp sinn og sækja á nýja markaði. Áætlunin listar upp markmið, aðgerðir og hugmyndir sem Krispy Kreme getur innleitt svo að markmiðin náist. Í upphafi áætlunarinnar verður farið í sögu Krispy Kreme, hér á Íslandi og erlendis. Þar á eftir er farið í aðferðafræði markaðsáætlunarinnar og hún útskýrð. Því næst er farið yfir helstu líkön sem notuð eru en þau hafa þann tilgang að hjálpa til við að skilja og greina markaðinn og neytendur og hvað þarf til svo árangur náist. Helstu líkönin eru SVÓT, PESTLE, Ansoff og Fimm krafta líkan Porters. Líkön þessi reyndust góð til þess að greina markaðinn sem Krispy Kreme er á og samkeppnisumhverfi þeirra. Út frá greiningunni var markhópur skilgreindur og staðfærsla vörumerkisins. Í síðari hluta áætlunarinnar er farið í atriði eins og markaðsstefnu og markmið fyrir 1 ár sem og SMART. Aðgerðaráætlun er tekin vel fyrir og allt sem viðkemur henni og að endingu er fjallað um mælanleika og eftirfylgni. Aðalmarkmið þessarar markaðsáætlunar er að búa til tryggt og traust samband milli Krispy Kreme og neytenda með það að leiðarljósi að tryggja ánægju neytenda/viðskiptavina til langtíma arðsemi. Það hefst með réttum skilaboðum, á réttum stöðum sem unnin eru í takt við markmið áætlunarinnar, með gæði og glaðværð að leiðarljósi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Örn Helgason 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29121
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29121

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Örn Helgason 1979-. Markaðssetning Krispy Kreme á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Krispy Kreme. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29121