Back to results

Bifröst University

Heilbrigðisþjónusta á Íslandi og í Svíþjóð 1970-2015 : samanburður á þróun útgjalda til heilbrigðisþjónustu og kostnaðarþátttöku sjúklinga

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókn þessari kannar höfundur þróun heilbrigðisútgjalda á Íslandi og í Svíþjóð frá 1970-2015. Þróun opinberra útgjalda, ásamt kostnaðarþátttöku heimila í heilbrigðisþjónustu er borin saman milli ríkjanna; og tengsl hugmyndafræði og stefnu stjórnmálaflokka við forgangsröðun heilbrigðisþjónustu. Markmið rannsóknar er þríþætt: 1. kanna þróun opinberra útgjalda til heilbrigðisþjónustu, 2. kanna þróun kostnaðarþátttöku heimila í heilbrigðisþjónustus og 3. athuga hvort tengsl séu milli stefnu ólíkra flokka í ríkisstjórn og útgjaldaþróun. Stór hluti rannsóknarvinnunnar byggir á samanburði gagna um heilbrigðisútgjöld og kostnaðarþátttöku heimila í heilbrigðisþjónustu sem fengin eru frá OECD og WHO. Rannsókn þessi er því sambland af sögulegri rannsókn (e. historical research) og samanburðarrannsókn (e. comparative research) þar sem borin er saman þróun þátta og könnuð möguleg orsakatengsl þeirrar þróunar. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að heildarútgjöld og opinber útgjöld til heilbrigðisþjónustu hafa aukist umtalsvert í báðum ríkjum. Þá virðast opinber útgjöld til heilbrigðisþjónustu aukast hjá vinstristjórnum jafnt sem hægri. Kostnaðarþátttaka einkaaðila og heimila í heilbrigðiskostnaði hóf að aukast á Íslandi í stjórnartíð Steingríms Hermannssonar (1983-87) og í stjórnartíð Davíðs Oddssonar (1991-95) (1995-1999) og (1999-2003). Þá er athyglivert að útgjöld heimila jukust ekki mikið eftir hrun, þrátt fyrir gífurlegan sparnað hjá hinu opinbera. Í Svíþjóð hófu útgjöld einkaaðila og heimila að aukast uppúr 1989 í stjórnartíð Ingvar Carlsson og Göran Persson, en einnig í stjórnartíð Fredrik Reinfeldt. Það er ályktun höfundar að þróun heilbrigðisútgjalda sé að afar takmörkuðu leyti undir áhrifum hugmyndafræði ólíkra stjórnmálaflokkar. Aðrir þættir virðast hafa meiri áhrif á útgjaldaþróun, t.a.m. efnahagur og skuldir hins opinbera, þar sem útgjöld dragast mikið saman í samdrætti og efnahagskreppu. Svo virðist vera sem að góð heilbrigðisþjónusta sé markmið þvert á stétt og stjórnmálalega hugmyndafræði hins vegar virðist vera telur höfundur að stefnubreyting hafi orðið í heilbrigðismálum á 9. Áratug síðustu aldar með aukinni áherslu á hagræðingu í rekstri og aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórhildur Þórarinsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28376
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28376

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórhildur Þórarinsdóttir 1989-. Heilbrigðisþjónusta á Íslandi og í Svíþjóð 1970-2015 : samanburður á þróun útgjalda til heilbrigðisþjónustu og kostnaðarþátttöku sjúklinga. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28376