Bifröst University
Hvaða leiðir í markaðssetningu skila árangri í útflutningi íslenskrar tónlistar og hverjar eru helstu hindranirnar?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er tekið til skoðunar hvað liggur á bak við útflutning íslenskrar tónlistar og þær aðferðir sem eru í boði. Litið er á kenningar og aðferðir innan markaðsfræðinnar. Litið er sérstaklega til kenningarinnar um langhalann (e. The Long Tail) sem getur í þessu tilviki greint stöðu tónlistarmanns á markaði. Fjallað er um markaðsblöndu, kynningarblöndu, mörkun og markaðshlutun sem hluta af þessu ferli auk stafrænnar markaðssetningar. Litið er í reynslubanka listamanna sem hafa komið að markaðssetningu tónlistar erlendis og voru tekin viðtöl við sex menn sem nýttust við skrif ritgerðarinnar. Kynningarstarf er stór hluti markaðssetningar og er það tekið fyrir ásamt almannatengslum. Leitast er við að varpa ljósi á þær leiðir sem eru í boði fyrir íslenska listamenn sem hyggja á útflutning tónlistar sinnar til útlanda. Enn fremur er horft til þeirra hindrana sem kunna að verða á vegi listamanna. Niðurstöðurnar leiða í ljós að útflutningur tónlistar er talsvert meira verk heldur en flestir gera sér grein fyrir að óreyndu. Helsta hindrunin er reynsluleysi í spilamennsku og framkvæmd tónleikaferða. Þegar á hólminn er komið skili sér það í slælegri spilamennsku og skipulagsleysi. Þess vegna sé það langbest fyrir listamenn sem fengið hafa boð um að spila á kynningarhátíðum (e. show-case) kynni sér allt fræðsluefni Útón og leiti til þeirra því þar fæst aðstoð við tengslamyndun við rétta aðila á kynningarhátíðunum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hallur Guðmundsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28340
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28340