Back to results

Bifröst University

Hvaða leiðir í markaðssetningu skila árangri í útflutningi íslenskrar tónlistar og hverjar eru helstu hindranirnar?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er tekið til skoðunar hvað liggur á bak við útflutning íslenskrar tónlistar og þær aðferðir sem eru í boði. Litið er á kenningar og aðferðir innan markaðsfræðinnar. Litið er sérstaklega til kenningarinnar um langhalann (e. The Long Tail) sem getur í þessu tilviki greint stöðu tónlistarmanns á markaði. Fjallað er um markaðsblöndu, kynningarblöndu, mörkun og markaðshlutun sem hluta af þessu ferli auk stafrænnar markaðssetningar. Litið er í reynslubanka listamanna sem hafa komið að markaðssetningu tónlistar erlendis og voru tekin viðtöl við sex menn sem nýttust við skrif ritgerðarinnar. Kynningarstarf er stór hluti markaðssetningar og er það tekið fyrir ásamt almannatengslum. Leitast er við að varpa ljósi á þær leiðir sem eru í boði fyrir íslenska listamenn sem hyggja á útflutning tónlistar sinnar til útlanda. Enn fremur er horft til þeirra hindrana sem kunna að verða á vegi listamanna. Niðurstöðurnar leiða í ljós að útflutningur tónlistar er talsvert meira verk heldur en flestir gera sér grein fyrir að óreyndu. Helsta hindrunin er reynsluleysi í spilamennsku og framkvæmd tónleikaferða. Þegar á hólminn er komið skili sér það í slælegri spilamennsku og skipulagsleysi. Þess vegna sé það langbest fyrir listamenn sem fengið hafa boð um að spila á kynningarhátíðum (e. show-case) kynni sér allt fræðsluefni Útón og leiti til þeirra því þar fæst aðstoð við tengslamyndun við rétta aðila á kynningarhátíðunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hallur Guðmundsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28340
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28340

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hallur Guðmundsson 1970-. Hvaða leiðir í markaðssetningu skila árangri í útflutningi íslenskrar tónlistar og hverjar eru helstu hindranirnar?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28340