Abstract
dc:description.abstractVerkefni þetta gengur út á það að kanna fýsileika viðskiptahugmyndar og áætlaða arðsemismöguleika hennar. Að setja á laggirnar menningarlegt kaffihús, Kaffi Keflavík, í miðbæ Reykjanesbæjar. Kaffihúsið kemur til með að bjóða upp á nýristað hágæðakaffi í einstöku umhverfi sem einkennist af fimmta áratugnum. Lagt er upp með að innanhúss verði kaffihúsið skreytt með gömlum minjum og myndum frá hernámi Íslendinga og sögu bæjarfélagsins. Til þess að leggja mat á fýsileika viðskiptahugmyndarinnar var gerð markaðsgreining þar sem farið var yfir væntanlega viðskiptavini, samstarfsaðila og mögulega samkeppnisaðila. Innra og ytra markaðsumhverfið var skilgreint ásamt helstu markhópum. Til þess að kanna arðsemismöguleika viðskiptahugmyndarinnar var gerð ítarleg fjárhagsgreining, þar sem farið er yfir áætlaða fjárhagsstöðu fyrirtækisins og helstu áhættuþætti verkefnisins. Fyrir arðsemisútreikninga þess var lagt upp með að ávöxtunarkrafan fyrir verkefnið væri tíu prósent og líftími fjárfestingarinnar fimm ár. Miðað við að forsendur verkefnisins gangi eftir kemur fyrirtækið til með að skila hagnaði á fyrsta starfsári. Núvirtur endurgreiðslutími fjárfestingarinnar er innan tímaramma verkefnisins og arðsemisvísitalan gefur til kynna að fjárfesting þessi gæti vel orðið arðbær fjárfestingarkostur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnbjörg Heiðudóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28315
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28315