Back to results

Bifröst University

Er straumlínustjórnun á Alþingi?

Abstract

dc:description.abstract

Alþingi er oftar en ekki á milli tannanna á fólki, enda virðast flestir hafa skoðanir á því sem fer fram innan veggja stofnunarinnar. Í því samhengi eru hugtök á borð við íhaldssemi, skipulagsleysi, sóun og annað nefnt til sögunnar. Það er því áhugavert að bera saman það vinnufyrirkomulag sem fer þar fram við hugmyndafræði straumlínustjórnunar. Engar rannsóknir virðast liggja fyrir hér á landi sem fjalla um það efni, þ.e.a.s. þar sem straumlínustjórnun og Alþingi eru borin saman, en nokkuð er um erlendar rannsóknir og greinar, sem sýna kosti þess að nýta straumlínustjórnun innan ríkisstofnanna til að ná fram betri framleiðni, einfalda verklag og minnka sóun. Straumlínustjórnun, lykilhugtök og þættir innan hugmyndafræðinnar eru því lagðar til grundvallar að rannsókninni til að bera saman við niðurstöður viðtala við viðmælendur. En sú aðferðafræði er notuð til að fá innsýn í vinnuumhverfið út frá sjónarmiðum, tilfinningum og reynslu viðmælenda. Viðtölin voru svo greind og kóðuð í fimm meginþemu : 1) Tímastjórnun og sóun, þar er vísað í tímastjórnun og túlkun viðmælenda á sóun. 2) Skipulag, skilvirkni og yfirsýn , þar er vísað í það hvernig viðmælendur lýsa skipulagi á vinnu og vinnufyrirkomulagi, ásamt ýmsum þáttum sem koma þar að. 3) Íhaldssemi, hefðir og pólitík, þar er vísað í það hvernig þessir þættir hafa áhrif á breytingar og þróun. 4) Breytingar í vinnuumhverfi, þar er vísað til breytinga í vinnuumhverfinu, hverju viðmælendur telja að þurfi að breyta, hverju hefur verið breytt og hvað standi í vegi fyrir breytingum. 5) Flæði upplýsinga og gagna, þar er vísað í flæði á vinnustaðnum, á vinnu, gögnum og upplýsingum. Niðurstöður koma kannski ekki á óvart, þar sem margt virðist ábótavant, töluvert er um sóun á tíma, mannauði og þ.a.l. peningum. Þörf er á meira skipulagi og meira upplýsingaflæði, svo að hægt sé að horfa til framtíðar og taka upplýstar ákvarðanir í mikilvægum málum. Skilvirkari vinnubrögð skapa betra vinnuumhverfi, meiri framleiðni og minni sóun. Niðurstöður rannsóknarinnar, eru því nokkuð samhljóma þeim rannsóknum sem lagðar eru til grundvallar, enda myndi hugmyndafræði á borð við straumlínustjórnun nýtast vel til að ná fram ofangreindum markmiðum. Ljóst er að verkfærin eru til staðar, því vantar bara vilja til að nota þau. Mikil þekking og auður býr í starfsfólki Alþingis og þingmönnum til að ná fram betra skipulagi og minnka sóun, með því að straumlínulaga vinnuferla og bæta skipulag og skilvirkni. Straumlínustjórnun myndi því nýtast vel sem sameiginlegur grundvöllur til að ná þessum markmiðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Valur Einarsson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26837
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26837

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Valur Einarsson 1984-. Er straumlínustjórnun á Alþingi?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26837