Back to results

Bifröst University

HönnunarMars JÁ eða Nei? : árangur þátttakenda í HönnunarMars

Abstract

dc:description.abstract

Hönnun og arkitektúr teljast til ungra atvinnugreina á Íslandi og er þróun þeirra mis langt á veg komin. Síðustu ár hafa greinarnar innan íslenska hönnunarsviðsins verið í sókn og mikil gróska hefur verið innan allra fagsviða hönnunar en þó virðist enn vanta fastmótaðri atvinnufarveg fyrir nýútskrifaða hönnuði og þurfa þeir því oft að skapa sín eigin atvinnutækifæri. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hvaða viðskiptalega árangri þátttaka í HönnunarMars skilar íslenskum þátttakendum hátíðarinnar. Jafnframt var kannað hjá hvaða aðilum þátttakendur ná mestum árangri sem og hvar þeir ná mestum árangri. Í rannsókninni er árangri skipt upp í þrjá þætti: Markaðssetningu, sölu og uppbyggingu tengslanets. Notast var bæði við eigindlegar og megindlegar aðferðir við rannsóknina. Gerð var spurningakönnun á netinu og hún send út til þátttakenda með tölvupósti en einnig voru tekin viðtöl við þrjá þátttakendur í HönnunarMars. Jafnframt voru tekin viðtöl við þrjá fagaðila sem starfa innan íslenska hönnunarsviðsins til að fá skýrari sýn af stöðu hönnunar og arkitektúrs á Íslandi í dag. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær að meirihluti þátttakenda töldu sig hafa náð góðum eða mjög góðum árangri með þátttöku í HönnunarMars og uppbygging tengslanets var sá þáttur árangurs sem þátttakendur náðu mestum árangri í. Aðrar niðurstöður sýndu að þátttakendur náðu best til íslenskra endursöluaðila og að þátttakendur í HönnunarMars náðu mestum árangri með sína hönnun á Íslandi. Lykilorð: HönnunarMars, árangur, hönnun, arkitektúr, markaðssetning, sala, tengslanet.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Íris Ósk Sighvatsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26804
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26804

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Ósk Sighvatsdóttir 1977-. HönnunarMars JÁ eða Nei? : árangur þátttakenda í HönnunarMars. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26804