Back to results

Bifröst University

Staða og framtíð rafrænna undirskrifta hjá tryggingafélögum á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Fullgild rafræn skilríki sem er undirstaða rafrænna undirskrifta hafa ekki rutt sér til rúms á Íslandi nema að litlu leyti. Opinberir aðilar sem koma að innleiðingu þeirra hafa í litlum mæli nýtt sér þær, svo sem fjármálaráðuneytið við undirritun ríkisreiknings og Auðkenni við undir- ritun ársreiknings. Almenningur virðist ekki gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem fullgild rafræn skilríki bjóða upp á og kallar því lítt eftir þeim hjá stofnunum og fyrirtækjum. Í þessari rannsókn er leitað svara við því hvað rafrænar undirskriftir eru og hverjir séu kostir þeirra og gallar. Einnig hvort þær séu á einhvern hátt hagkvæmur kostur fyrir fyrirtæki og viðskiptavini þeirra. Þá voru skoðaðar hindranir við innleiðingu og hvort öryggi viðkvæmra persónulegra gagna væri tryggt. Til viðbótar var litið á það hvort rafrænar undirskriftir gætu aukið sjálfbærni fyrirtækja og hvort hér væri á einhvern hátt um jafnréttismál að ræða. Niðurstöður benda til þess að rafrænar undirskriftir séu framtíðin en í dag er skortur á þeim eina hindrunin fyrir því að viðskiptavinir geti stundað öll sín viðskipti rafrænt við fyrirtæki á borð við tryggingafélögin. Þær stytta ferla hjá fyrirtækjum, flýta fyrir afgreiðslu og þægindi viðskiptavina aukast til muna. Þá yrði pappírsnotkun minni, ferðum starfsmanna og viðskiptavina myndi fækka auk þess sem jöfnuður ykist meðal viðskiptavina þar sem búseta eða fötlun hefði engin áhrif.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Þór Samúelsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26800
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26800

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Þór Samúelsson 1973-. Staða og framtíð rafrænna undirskrifta hjá tryggingafélögum á Íslandi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26800