Bifröst University
Sjálfsafgreiðslulausnir bankanna : er sjálfsafgreiðsla það sem koma skal?
Abstract
dc:description.abstractÝmsar nýjungar í sjálfsafgreiðslum hafa litið dagsins ljós á undanförnum árum og ekkert bendir til annars en að sú þróun haldi áfram. Samhliða þessu hefur neytendahegðun verið að breytast og neytendur kjósa í auknum mæli að eiga sín viðskipti þegar þeim hentar hverju sinni og á sínum forsendum. Bankarnir hafa komið með nýjar sjálfsafgreiðslulausnir á markað til að mæta kröfum neytenda en einnig til að hagræða í rekstri. Markmið rannsóknarinnar var að reyna að komast að því hvernig þróunin í sjálfsafgreiðslulausnum verður í framtíðinni og hvort að sjálfsafgreiðsla sé það sem koma skal í íslenskum bankaviðskiptum. Einn möguleikinn er að notendur geti fengið meira val með auknum sjálfsafgreiðslulausnum og þar af leiðandi betri þjónustu. Hins vegar er sá möguleiki einnig fyrir hendi að þjónustustigið verði ekki eins gott þar sem persónuleg þjónusta minnkar og stöðugildum fækkar ef útibúum fækkar eða ef þau hverfa alveg. Helstu niðurstöður gefa til kynna að sjálfsafgreiðslulausnum komi til með að fjölga og taka við af útibúum hvað varðar hefðbundnar daglegar bankaafgreiðslur eins og greiðslu reikninga og millifærslur. Útibú munu þó ekki hverfa að fullu heldur mun þeim fækka og fá nýtt hlutverk. Bankarnir tala um hagræðingu í rekstri ásamt því að vilja uppfylla óskir viðskiptavina um betri þjónustu með því að bjóða þeim upp á að sinna sínum viðskiptum þegar þeim hentar. Það er því mat höfundar að sjálfsafgreiðslulausnum muni fjölga en að þær muni ekki koma algjörlega í staðinn fyrir útibú.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26791
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26791