Back to results

Bifröst University

Samkeppni eða samvinna? : loftslagsbreytingar sem ógn við öryggi smáríkja

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um öryggi smáríkja í kjölfar loftslagsbreytinga og hvernig þau ríki geta brugðist við vandanum. Markmiðið er að greina hvernig loftslagsbreytingar ógna ólíkum ríkjum en í ritgerðinni verða tekin fyrir tvö dæmi um smáríki sem hafa ólíka eiginleika og hagsmuni. Fyrra dæmið sem verður tekið fyrir er iðnríkið Ísland og seinna dæmið er þróunarríkið Madíveyjar. Möguleikar ríkjanna eru ólíkir hvað varðar aðlögun og fyrirbyggjandi aðgerðir vegna ólíks efnahags og auðlinda, svo eitthvað sé nefnt. Ólíkar ógnanir steðja að þessum ríkjum þegar kemur að loftslagsbreytingum og þau geta haft áhrif umfram stærð hvað varðar þróun loftslagsmála. Höfundur leitar eftir því að kanna hver sé líkleg þróun á alþjóðavettvangi og hvernig smáríki geta látið til sín taka. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að smáríkjum stendur ógn af loftslagsbreytingum og eiga það sameiginlegt að vera varnarlaus hvað þær varðar þrátt fyrir ólíka stöðu innan alþjóðastjórnmála. Þeir möguleikar sem smáríki hafa til að hafa áhrif á alþjóðavettvangi eru fremur litlir samanborið við önnur stór og valdamikil ríki. Á hinn bóginn geta þau sameinað krafta sína og sýnt mikilvægt frumkvæði í málum sem þeim stafar sameiginleg ógn af. Vegna þess hve loftslagsbreytingar eru alþjóðleg ógn geta smáríki og samvinna þeirra haft áhrif á viðhorf annarra ríkja á ógnum sem kunna að vera innan seilingar. Þá sýna niðurstöður hve mikilvægt er fyrir smáríki að nýta endurnýjanlega orkugjafa og auka styrkveitingu til tækniframfara. Niðurstöðurnar þýða að smáríki eru að einhverju leyti fórnarlömb þeirrar miklu losunar sem á sér stað í heiminum en geta hins vegar einnig haft mikil áhrif á alþjóðavettvangi umfram stærð. Smáríki hafa vegna smæðar og lítilla auðlinda ekki mikla möguleika til þess að bregðast við loftslagsbreytingum upp á eigin spýtur. Sterkur leiðtogi og hæfni hans til að höfða til annarra ríkja er því mjög mikilvægt í alþjóðastjórnmálum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sif Guðmundsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26786
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26786

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sif Guðmundsdóttir 1989-. Samkeppni eða samvinna? : loftslagsbreytingar sem ógn við öryggi smáríkja. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26786