Back to results

Bifröst University

„Þú fæðist ekki kona, heldur verður kona.“ : birtingarmynd kyngervis á vefsíðu Krakkarúv og hugsanleg áhrif þess á börn.

Abstract

dc:description.abstract

Áreiti nútíma einstaklingsins er gífurlegt. Alls staðar í kringum okkur birtast okkur ítrekað hugmyndir um það hvað sé talið æskilegt útlit og hegðun einstaklinga. Þessar birtingar hafa mikil áhrif á einstaklinginn sem sjálfkrafa fer að breyta sér með það að markmiði að samsvara sig í þessum hugmyndum. Í þessari ritgerð eru settar fram tvær mismunandi spurningar. Hver er birtingarmynd kyngervis í íslensku barnaefni? og hver eru hugsanleg áhrif þeirra birtingarmyndar á börn? Rannsókn á því hvernig kyngervi birtist í dægurmenningu barna var unnin með orðræðugreiningu þar sem farið var yfir efni eins ákveðins miðils, krakkaruv.is, og það skráð samviskusamlega niður með það í huga að finna ákveðin þemu sem væru rauði þráðurinn í efninu. Til að skoða hugsanleg áhrif birtingarinnar á börn var síðan stuðst við eldri rannsóknir og niðurstöður þess teknar saman. Rannsóknin sýndi að það kyngervi sem birtist í efni krakkarúv byggir á miklum staðalmyndum og eru kynin sýnd sem andstæður þar sem konur eru metnar út frá útliti, eru hlédrægar, góðar og umhyggjusamar en karlar sterkir, gáfaðir og fyndnir. Rannsóknin sýndi enn fremur að það eru þessar hugmyndir um kynin sem eru rót ýmissa félagslegra vandamál áborð við launamun kynjanna og kynbundið ofbeldi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Kristjana Ó. Hjaltested 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26785
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26785

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Kristjana Ó. Hjaltested 1992-. „Þú fæðist ekki kona, heldur verður kona.“ : birtingarmynd kyngervis á vefsíðu Krakkarúv og hugsanleg áhrif þess á börn.. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26785