Back to results

Bifröst University

Verðmat fyrirtækja : endurspeglar markaðsgengi Reginn hf. niðurstöður verðmatsaðferða?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort markaðsverð hlutabréfa í Reginn hf. endurspegli raunverulegt virði bréfanna að mati greiningaraðila. Einnig verður kannað hvernig má beita mismunandi aðferðum við virðismat hlutabréfa. Algengastu aðferðir við virðismat hlutabréfa eru núvirt sjóðstreymi, arðgreiðslulíkan og kennitölugreining. Aðferðin núvirt sjóðstreymi byggir á áætlun um tekjustreymi félags fram í tímann sem síðan er núvirt með vegnum meðalfjármagnskostnaði. Arðgreiðslulíkanið felur í sér að áætla væntar arðgreiðslur í framtíðinni sem síðan eru núvirtar með ávöxtunarkröfu. Með kennitölugreiningu má bera saman kennitölur félaga og meta út frá því hver staða félagsins er samanborið við samkeppnisaðila eða kennitölur fyrri ára. Tæknigreining felur í sér að mæla sveiflur á markaði og tímasetja þannig kaup og sölu hlutabréfa. Hlaupandi meðaltöl eru notuð þannig að meðalverð bréfa yfir ákveðið tímabil myndar ákveðna línu. Fari verð yfir línuna er það merki um hækkunarlegg en fari það niður fyrir línuna er það merki um lækkunarlegg. Sveifluvísar eru notaðir til þess að finna hámark uppsveiflu eða botninn á niðursveiflu hlutabréfa á markaði. Með því má tímasetja sölu bréfa í hámarki uppsveiflu og kaupa bréf í botni niðursveiflu. Í lokakafla ritgerðarinnar er farið yfir verðmat greiningaraðilanna IFS og Capacent og niðurstöður þeirra kynntar. Kaup Reginn hf. í Fastengi árið 2015 skapaði óvissu fyrir greinendur. Félagið náði hins vegar að vinna hratt og örugglega úr eignasafni fyrirtækisins og markaðsvirði þess varð því hærra en búið var að spá fyrir um. Reginn hf. hefur verið undirverðlagt frá því það kom fyrst á markað að mati greiningaraðila. Markaðsvirði endurspeglar því ekki raunverulegt virði félagsins þó bilið sé ekki mikið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónína Stefánsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26181
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26181

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónína Stefánsdóttir 1989-. Verðmat fyrirtækja : endurspeglar markaðsgengi Reginn hf. niðurstöður verðmatsaðferða?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/26181