Abstract
dc:description.abstractFlestir sem hafa aldur til muna eftir hryðjuverkaárásinni á World Trade Center í New York 11. september árið 2001 og í framhaldinu yfirlýstu stríði Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum. Ein afleiðinga baráttu Bandaríkjamanna gegn hryðjuverkum var stríð háð í leynum í Pakistan, stríð þar sem hefðbundinn hernaður var ekki notaður heldur mannleysur (e. drones) vopnaðar flugskeytum. Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þróunina sem leiddi af sér mannleysuárásir Bandaríkjamanna og CIA í Pakistan, árangur þeirra og áhrif á hryðjuverkamenn og almenna borgara. Rannsóknarspurningin er því: ,,Hver er árangur mannleysuárása Bandaríkjamanna og CIA í Pakistan, hver eru áhrifin á hryðjuverkamenn og almenna borgara og hvert er viðhorfið gagnvart þeim í Bandaríkjunum og Pakistan?”. Niðurstöður ritgerðarinnar eru að með mannleysuárásunum hefur tekist að drepa marga hátt setta meðlimi og leiðtoga hryðjuverkasamtaka í Pakistan. Á móti kemur að stöðug aukning virðist vera í nýliðun hryðjuverkasamtaka þrátt fyrir árásirnar. Þegar ein hryðjuverkasamtök veikjast taka önnur við. Einnig valda mannleysuárásirnar almennum borgurum ómældum skaða, líkamlegum, andlegum og í formi eyðileggingar. Mikill meirihluti Bandaríkjamanna styður við mannleysuárásirnar, þá er hefðbundnari hernaður ekki fýsilegur almenningi þar sem hann kostar mikla peninga og líf Bandarískra hermanna. Áherslan er því einskorðuð við notkun á mannleysum í baráttunni gegn hryðjuverkum, aðrar mannúðlegri leiðir hafa ekki fengið hljómgrunn. Pakistanskir embættismenn virðast tvístígandi í stuðningi sínum, fagna árásunum stundum en fordæma svo. Meirihluti Pakistansks almennings telur árásirnar hins vegar aldrei réttlætanlegar. Stefnubreyting virðist þó ekki eiga sér stað hjá Bandarískum stjórnvöldum, á sama tíma og mannleysuárásum hefur fækkað mikið í Pakistan hefur þeim bara fjölgað gríðarlega annarsstaðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingvar Leví Gunnarsson 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25147
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25147