Back to results

Bifröst University

Vinnuveitandaábyrgð íslenska ríkisins : hver er skaðabótaábyrgð heilbrigðisstofnana vegna atvika er varða störf heilbrigðisstarfsmanna ?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að svara þeirri rannsóknarspurningu hver sé skaðabótaábyrgð heilbrigðisstofnana á Íslandi vegna atvika er varða störf heilbrigðisstarfsmanna. Með atvikum er verið að vísa til atburða sem hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir notendur heilbrigðisþjónustunnar. Í maí 2014 gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi á spítalanum vegna manndráps af gáleysi. Þegar gefin er út ákæra vegna manndráps tengist það því sviði lögfræðinnar sem nefnist refsiréttur. Ákæran var gagnrýnd af heilbrigðisstarfsmönnum en þeir telja að ákæran verði til þess að heilbrigðisstarfsmenn verði tregir til að skrá og tilkynna um óvænt atvik. Umfjöllun ritgerðarinnar mun fyrst beinast að þeim lagaákvæðum sem eiga við um tilkynningaskyldu íslenskra heilbrigðisstarfsmanna um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu þ.e. lögum nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu og lögum nr. 61/1998 um dánarvottorð, krufningar og fl. Aðal áherslan mun þó beinast að því sviði lögfræðinnar sem nefnist skaðabótaréttur og þeim lagaákvæðum sem þar eiga við, lögum nr. 50/1993 um skaðabætur. Fjallað verður um uppruna og sögu skaðabótalaganna, síðan verður fjallað um bótagrundvöllinn en það er sú regla sem á við skilyrði skaðabótaábyrgðar í hverju tilviki fyrir sig. Að lokum verður fjallað um skaðabótaábyrgð heilbrigðisstofnana og starfsmanna þeirra. Skoðaðir verða nokkrir dómar er varða störf heilbrigðisstarfsmanna og atvik í störfum þeirra sem höfðu afdrifaríkar afleiðingar fyrir notendur þjónustunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Ósk Ragnarsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25146
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25146

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Ósk Ragnarsdóttir 1967-. Vinnuveitandaábyrgð íslenska ríkisins : hver er skaðabótaábyrgð heilbrigðisstofnana vegna atvika er varða störf heilbrigðisstarfsmanna ?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25146