Back to results

Bifröst University

Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum : hver eru hagræn áhrif ferðaþjónustu á viðskiptalíf í Vestmannaeyjum og hversu sterk er samfélagsábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu?

Abstract

dc:description.abstract

Ljóst er að Landeyjarhöfn og beinar siglingar þaðan hafa umtalsverð áhrif á fjölda innlendra og erlendra ferðamanna og þar með á viðskiptalífið, samfélagið og hagkerfið í Eyjum. Í dag byggir atvinnulíf í Eyjum að mestu á sjávarútvegi. Ferðaþjónustan hefur þó mikið sótt í sig veðrið hin síðustu ár og þá sér í lagi frá opnun Landeyjarhafnar árið 2010. Þá jókst straumur ferðamanna til Eyja umtalsvert, fyrirtækjum í geiranum tók að fjölga og þar með atvinnumöguleikum og stöðugildum í faginu á svæðinu. Ferðamannastraumurinn hefur þó ekki náð þeim hæðum sem straumurinn í heild sinni á Íslandi hefur náð og er ástæðan óstopular samgöngur milli lands og Eyja bróðurpart ársins eða frá um það bil október til apríl ár hvert þegar Landeyjarhöfn er lokuð. Sú staðreynd einangrar Eyjar og gerir ferðaþjónustuaðilum á svæðinu ekki kleift að taka þátt í þeirri markvissu uppbyggingu og markaðsátaki sem er að eiga sér stað. Hér er sér í lagi verið að vísa til „Ísland allt árið“ og þar með minnkun árstíðarskiptingar, aukningu í vetrarferðamennsku og aukinni dreifingu á ferðamönnum um land allt. Þarna liggja mikil tækifæri til framkvæmda og í því að fá ferðamanninn til að „eyða“ meira á Íslandi. Tækifæri sem ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjum eiga erfitt með að nýta sér eins og staðan er í dag, sem gerir rekstur þeirra flókinn og erfiðan þar sem áætlanir byggja á mikilli óvissu. Einhver fyrirtæki hafa bolmagn til fjárfestingar þrátt fyrir óvissu en önnur víla sér við fjárfestingum og frekari uppbyggingu í ljósi stöðunnar. Þessu þarf að breyta og tryggja að ferðaþjónustufyrirtæki í Vestmannaeyjum sitji við sama borð og önnur fyrirtæki. Tækifæri til upplifunar og nýsköpunar í Eyjum eru mörg og allir innviðir til staðar. Með betri samgöngum og aukinni samvinnu fyrirtækja í Eyjum má auka fjölda gistinátta og þar með „eyðslu“ ferðamanna á svæðinu. Þar liggja ómæld tækifæri til hagrænna og samfélagslegra áhrifa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðdís Ösp Ingvadóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25142
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25142

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Ösp Ingvadóttir 1977-. Ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum : hver eru hagræn áhrif ferðaþjónustu á viðskiptalíf í Vestmannaeyjum og hversu sterk er samfélagsábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25142