Bifröst University
Réttarstaða albanska hælisleitandans "Málsmeðferð hælisumsóknar frá höfnun hælisbeiðnar að veittum ríkisborgararétti"
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Rannsókn höfundar snýr að málsmeðferð hælisumsókna á Íslandi með skírskotun til málsmeðferðar albönsku Pepaj fjölskyldunnar sem sótti um hæli á Íslandi í febrúarmánuði árið 2015. Hælisumsókn albönsku fjölskyldunnar fór í gegnum skilyrt ferli Útlendingastofnunar sem annast afgreiðslu umsókna og tekur ákvarðanir í málum hælisleitenda á fyrsta stjórnsýslustigi. Málsmeðferð fjölskyldunnar lauk haustið 2015 með höfnun Útlendingastofnunar á hæli og þá var þeim einnig synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Fjölskyldan snéri aftur til Albaníu en dvöl þeirra í heimalandi sínu var stutt, því að tillögu allsherjarnefndar Alþingis var fjölskyldunni veittur íslenskur ríkisborgararéttur með lögum í desember mánuði árið 2015. Í rannsókninni verður farið yfir þau ólíku álitamál sem komu upp við meðferð hælisumsóknar Pepaj fjölskyldunnar. Fjallað verður um ólíkar valdheimildir stjórnvalda annars vegar og löggjafans hins vegar þegar kemur að veitingu íslensks ríkisfangs og hvernig matskenndar ákvarðanir geta valdið óvissu og dregið úr réttaröryggi borgarana. Höfundur telur í niðurstöðu sinni að Útlendingastofnun hafi haft svigrúm til að veita Pepaj fjölskyldunni dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða í ljósi ákvæða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og vegna heimilda sem íslensk lög veita stjórnvöldum við ákvarðanatöku í málefnum útlendinga. Höfundur telur þörf á hlutlægum og vel skýrðum lagareglum um málsmeðferð hælisumsókna og við veitingu íslensks ríkisfangs sem bæði stjórnvöld og löggjafinn verði að vera bundin af, sér í lagi nú þegar gert er ráð fyrir fjölgun hælisumsókna á Íslandi vegna flóttamannavanda heimsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðmunda Katrín Karlsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25139
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25139