Abstract
dc:description.abstractLokaverkefni þetta fjallar um brot á virðisaukaskattslögum. Í verkefninu er gerð almennt grein fyrir virðisaukaskatti, lögum um virðisaukaskatt og skattyfirvöldum. Rakinn er ferill málsmeðferða ákvörðunar og endurákvörðunar ríkisskattstjóra samkvæmt málsmeðferðarreglum skattalaga. Fjallað er um þær sektarmeðferðir sem til boða stendur við lok málsmeðferðar skattalagabrots. Þá er farið yfir meðferð brota er varða 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt og 262. gr. laga nr. 19/1940, almenn hegningarlög og hvaða afleiðingar þau brot geta haft fyrir skattaðila. Að endingu er í stuttu máli gerð grein fyrir banni við tvöfaldri refsingu (ne bis in idem) samkvæmt 1. mgr. 4. gr. 7. Viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu sem er lögfestur hér á landi með lögum nr. 62/1994, um Mannréttindasáttmála Evrópu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elín Rósa Guðbjartsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25135
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25135