Back to results

Bifröst University

Hjálpræðisherinn á Íslandi : verkferlar og áhættumat

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Markmið þessarar rannsóknar er að formgera og skjalfesta innra eftirlit með áherslu á fjárhagsbókhald Hjálpræðishersins á Íslandi. Stuðst var við fræðilegar heimildir um innra eftirlit til að afla upplýsinga um umgjörð þess ásamt því að tekin voru viðtöl við yfirmenn Hjálpræðishersins og starfsmanna sem koma að bókhaldi þess. Var það gert til að kanna hvernig verkferlar fjárhagsbókhaldsins eru og hvaða væntingar eru hjá stjórnendum um fjárhagsbókhald og skýrslugjöf. Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar í byrjun:  Hverjir eru helstu áhættuþættir í fjárhagsbókhaldi Hjálpræðishersins á Íslandi?  Hverjar eru lykil eftirlitsaðgerðir í tengslum við færslu fjárhagsbókhalds Hjálpræðishersins á Íslandi? Helstu niðurstöður sýna fram á að ýmsar áhættur eru í verkferlum fjárhagsbókhaldsins sem leitt geta til skekkju og ónákvæmni. Skýrsluhöfundur teiknaði upp verkferla bókhaldsins og bjó til áhættumat út frá þeim. Til að minnka líkur á skekkjum og ónákvæmni í bókhaldinu og til að draga úr skilgreindum áhættuþáttum er í skýrslunni gerðar tillögur að eftirlitsaðgerðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Brynja Sigurjónsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23767
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23767

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Brynja Sigurjónsdóttir 1987-. Hjálpræðisherinn á Íslandi : verkferlar og áhættumat. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23767