Back to results

Bifröst University

Lúxusskútusiglingar á Vestfjörðum og við Grænlandsstrendur: Rekstraráætlun/Rekstrarlíkan

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónustan er sívaxandi grein á Íslandi og er ósnortin náttúra landsins helsta aðdráttaraflið. Undanfarin ár hefur erlendum ferðamönnum fjölgað til muna, vilja þeir upplifa landið og drekka í sig náttúruna á einn eða annan hátt. Afþreying ásamt gististöðum hefur fjölgað hér á landi til að veita ferðalangnum þetta einstaka tækifæri. Þetta á við hvort sem um er að ræða ferðir fyrir fólk í millistétt eða hærra setta og þá tengt lúxus. Meginmarkmið þessa rannsóknarverkefnis er að fjalla um hvort forsendur séu fyrir nýju fyrirtæki í ferðaþjónustubransanum. Fyrirtæki þetta myndi vera sérhæft og bjóða uppá lúxusskútusiglingar á Vestfjörðum og við strendur Grænlands. Lúxusinn væri aðalmerkið og því markhópurinn í samræmi við það. Í hverri ferð væri um að ræða fjóra til tólf farþega og þrjá til fjóra starfsmenn. Þannig myndi skapast náin og persónuleg tengsl sem veita viðskiptavininum góða upplifun ásamt lífsreynslu sem hann myndi muna um ókomna framtíð. Til að komast sem næst raunhæfri niðurstöðu var lagt upp með þessari rannsóknarspurningu: Eru forsendur fyrir stofnsetningu á fyrirtækinu Arctic Circle Sailing? Niðurstaða verkefnisins er fengin bæði með megindlegri og eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem unnið er með rekstrar- og fjárhagsáætlun ásamt viðtölum við aðila sem tengjast lúxusferðamennsku á einn eða annan hátt. Niðurstaðan leiddi í ljós að ferðamenn vilja í auknu mæli fá ferðir tengdar lúxus, aukning sé á tekjuháum einstaklingum og að þau fyrirtæki sem bjóða upp á siglingar eru fullbókaðir og því greinilega vöntun á slíku fyrirtæki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Dagmar Þorleifsdóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23765
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23765

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Dagmar Þorleifsdóttir 1968-. Lúxusskútusiglingar á Vestfjörðum og við Grænlandsstrendur: Rekstraráætlun/Rekstrarlíkan. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23765