Back to results

Bifröst University

Íþróttamenn í landsliðsverkefnum : hver er staða íþróttafélaga gagnvart íþróttasérsamböndum vegna þátttöku leikmanna í landsliðsverkefnum?

Abstract

dc:description.abstract

Í maí 2014 unnu þrjátíu þýsk handknattleiksfélög mál í Héraðsdóm Dortmund sem þau höfðuðu gegn þýska handknattleikssambandinu og Alþjóðahandknattleikssambandinu. Málið fjallaði um hvort það stæðist samkeppnislög að íþróttasamböndin gætu kallað til sín leikmenn í landsliðsverkefni án þess að leikmennirnir væru tryggðir eða íþróttafélögunum væru borgaðar bætur vegna þátttöku þeirra. Í ritgerðinni er farið yfir lög og reglurgerðir íþróttasérsambanda, samkeppnisreglur, horft á málið frá sjónarmiði íþróttafélaga annars vegar og íþróttasambanda hinsvegar. Auk þess verða skoðaðir dómar og kvartanir sem hafa borist á borð Evrópusambandsins varðandi álitaefnið. Sú niðurstaða er dregin af efni ritgerðarinnar að staða íþróttafélaga gagnvart íþróttasérsamböndum er að íþróttafélag geti ekki neitað íþróttasérsambandi um þjónustu leikmanns í landsliðsverkefni, svo lengi sem landsliðsverkefnið er viðurkennt af alþjóðaíþróttasérsamböndunum. Íþróttafélögunum ættu þó að vera greiddar bætur og leikmenn þeirra tryggðir svo að jafnræðis sé gætt. Í dag eru þessar bætur ekki nægjanlega háar að mati höfundar til þess að réttlæta að íþróttafélög séu skyldug til að senda leikmenn sína í landsliðsverkefni. Höfundur telur að núverandi reglur og lög varðandi landsliðsverkefni stangist á við evrópsk samkeppnislög. Þessum lögum íþróttasambandanna verður að breyta til að jafna hlut íþróttafélaganna en mikilvægi stórmóta í íþróttagreinum er of mikið bæði fjárhagslega og félagslega til þess að hægt sé að leggja þau niður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Trausti Eiríksson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23758
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23758

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Trausti Eiríksson 1991-. Íþróttamenn í landsliðsverkefnum : hver er staða íþróttafélaga gagnvart íþróttasérsamböndum vegna þátttöku leikmanna í landsliðsverkefnum?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23758