Bifröst University
Framtíð smásöluverslunar : hvaða áhrif mun tækniþróun hafa á framtíð smásöluverslunar á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar ritgerðar er að kanna hvaða áhrif tækniþróun mun hafa á framtíð smásöluverslunar hér á landi. Leitast er við að skoða hvaða þættir munu breytast á næstu árum í smásöluverslunum vegna tækniþróunar. Netverslun hefur aukist hér á landi sem og erlendis og virðist sem tækniþróun sé að breyta því hvernig neytandi hegðar sér í kaupum á vöru og þjónustu. Snjallsímar og smáforrit, ásamt netverslun og fleiru, hafa breytt því að fleiri leiðir eru mögulegar í dag til að versla við ákveðnar smásöluverslanir. Alverslun er sú verslun sem býður uppá allar mögulegar leiðir fyrir viðskiptavini til að eiga viðskipti við sig. Eigindlegum rannsóknaraðferðum var beitt í formi viðtala til að rannsaka hvernig smásöluverslun mun verða hér á landi í framtíðinni. Viðtöl voru tekin við einstaklinga í stjórnunarstöðum hjá smásöluverslunum sem teljast stórar hér á landi. Helstu niðurstöður voru þær að tækniþróun mun hafa nokkuð mikil áhrif á framtíð smásöluverslunar hér á landi. Netverslun mun halda áfram að aukast og netverslun í gegnum snjallsíma mun aukast samhliða henni. Smáforrit munu verða notuð í auknum mæli og einnig notkun samfélagsmiðla. Þar sem að netverslun mun veita hefðbundnum verslunum meiri samkeppni munu hefðbundnar verslanir leggja meiri áherslu á að gera upplifun í verslun jákvæðari. Verður það gert með því að bæta þjónustu og breyta útliti og uppröðun verslana.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Viktor Freyr Elísson 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23756
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23756