Back to results

Bifröst University

Markaðssetning Frisbígolfs á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Frisbígolf

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að móta heildstæða markaðsáætlun fyrir Frisbígolf á Íslandi sem mun jafnframt hjálpa við að finna út hvernig hægt er að auka við iðkendafjölda íþróttarinnar á Íslandi, fyrir áhugasama aðila um íþróttina og til að hjálpa aðstandendum íþróttarinnar að búa til viðskiptahugmyndir í kringum hana sem og öðrum sem hugnast svo. Markaðsáætlunin er ekki byggð á neinni rannsókn en tekið verður viðtal við aðila tengda íþróttinni, sem og skoðaðir helstu samkeppnisaðilar á þessum markaði. Í byrjun verður stuttlega sagt frá sögu íþróttarinnar bæði hérlendis og erlendis og stöðu mála í dag, til að gefa lesanda smá innsýn í viðfangsefnið. Í fyrri hluta verður farið yfir öflun markaðsþekkingar þar sem farið verður yfir þær hindranir sem geta orðið á vegi við gerð markaðsáætlunar fyrir svona íþrótt og hvaða greiningartæki er hægt að nýta til að koma viðskiptahugmyndum eða tækifærum af stað í kringum íþróttina og auka fjölda iðkenda. Þar má t.d. nefna SVÓT - styrkleikar og veikleikar innra umhverfis og PESTLE sem greinir ytra umhverfi - ógnanir og tækifæri. Einnig verður skoðað Ansoff líkanið til að skoða vöxt á markaði. Samkeppnisgreining verður gerð og íþróttin staðsett á markaði. Í seinni hlutanum verður farið yfir áætlunina þar sem markaðsstefna og markmið koma fram sem og sett verður upp aðgerðaáætlun fyrir árið 2016 og svo að lokum skoðaðar mismunandi leiðir í markaðssetningu íþróttarinnar. Niðurstöður gefa til kynna að það er margt gott sem hefur verið gert fyrir Frisbígolf hérlendis en þó vantar alla markvissa markaðssetningu og góða markaðsáætlun til að koma íþróttinni á það flug sem hún hefur verið á út um allan heim. Með skýrri markaðssetningu og stefnu ætti íþróttin að geta blómstrað hér á landi um ókomna tíð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jón Símon Gíslason 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23727
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23727

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jón Símon Gíslason 1987-. Markaðssetning Frisbígolfs á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Frisbígolf. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23727