Bifröst University
Tilgreiningarregla Hæstaréttar Íslands : er grundvöllur fyrir því í lögskýringargögnum eða lögum að láta tilgreiningu lánsfjárhæðar ráða því hvaða skuldbinding telst gengistryggð og hver ekki?
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er rannsakað hvort tilgreiningarreglan sem Hæstiréttur hefur beitt við úrlausn gengismála, eigi sér stoð í lögum eða lögskýringargögnum. Í upphafi ritgerðarinnar, öðrum kafla, er fjallað um sögu verðtryggingar og vaxtalaga á Íslandi. Í þriðja kafla ritgerðarinnar verður lögð áhersla á dóma Hæstaréttar Íslands í mótun og framkvæmd tilgreiningareglu réttarins. Í fjórða kafla ritgerðarinnar er farið yfir hvernig skýra beri ákvæði laga um verðtryggingu sem og eldri dómaframkvæmd sem þýðingu hefur varðandi regluna. Í fimmta kafla ritgerðarinnar er farið yfir reglur um túlkun samninga, sem vert er að hafa í huga varðandi úrlausnir Hæstaréttar Íslands í gengismálunum. Að lokum eru dregnar saman niðurstöður ritgerðarinnar. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að ekki sé grundvöllur fyrir því í lögskýringargögnum eða lögum að láta tilgreiningu lánsfjárhæðar ráða því hvaða skuldbinding telst gengistryggð og hver ekki.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hjörtur Benjamín Halldórsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23724
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23724