Back to results

Bifröst University

Opinberir aðilar í virðisaukaskattskerfinu

Abstract

dc:description.abstract

Meðferð opinberra aðila í virðisaukaskattsrétti er nokkuð flókin og ýmsum vandkvæðum bundin. Sérstök staða þeirra innan hefðbundinna virðisaukaskattskerfa, þar sem þeir eru ýmist undanþegnir eða skattskyldir eftir því hvaða þjónustu eða vöru þeir eru að selja og hvort þeir geri það í samkeppni við atvinnufyrirtæki, getur í vissum tilvikum leitt til umtalsverðra samkeppnisraskana, hás flækjustigs og mikils hlýðnikostnaðar. Við rannsókn á meðferð opinberra aðila innan íslenska- og evrópska virðisaukaskattskerfisins kemur í ljós að þó að kerfin séu skyld að vissu leyti, þá er talsverður munur á þeim hvað meðferð opinberra aðila varðar. Íslenska kerfið virðist vera skilvirkara og ná að mestu leyti fram markmiðum sínum um hlutleysi gagnvart samkeppni á meðan það evrópska er flókið og þungt í vöfum. Ástæður fyrir þessu geta verið nokkrar, aðallega þær að annars vegar er erfitt að breyta skattalöggjöf Evrópusambandsins þar sem það krefst einróma samþykkis allra aðildarríkjanna, og hins vegar að kerfið er langt frá því að vera að fullu samræmt. Meira ber því á neikvæðum áhrifum meðferðar opinberra aðila í evrópska kerfinu en því íslenska, sem í raun þarf engra úrbóta við. Hin síðari ár hafa þau lönd sem tekið hafa upp virðisaukaskatt farið aðra leið við meðferð opinberra aðila og skattlagt þá að fullu. Sú leið hefur verið lögð til sem hugsanleg lausn á þeim vandamálum sem meðferð þeirra skapar í evrópska kerfinu og væri vert að kanna möguleikann á þeirri leið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brimar Aðalsteinsson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23138
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23138

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brimar Aðalsteinsson 1978-. Opinberir aðilar í virðisaukaskattskerfinu. 2015. http://hdl.handle.net/1946/23138