Back to results

Bifröst University

Hvað er heildstæð áhættustýring og hvernig má leggja mat á virkni hennar?

Abstract

dc:description.abstract

Í útskýringum á ástæðum hruns fjármálakerfisins árið 2008 hefur meðal annars komið fram að orsakir hafi verið lélegir stjórnarhættir, skortur á áhættustýringu og ófullnægjandi eftirlit. Í fjármálafyrirtækjum má sjá sameiginleg vandamál hvað fyrirkomulag og virkni áhættustýringar og eftirlitsumhverfisins varðar sem verður að bregðast við. Rannsóknir sýna að stjórn finnst hún fá of mikið efni til yfirferðar og að óraunhæfar kröfur séu gerðar til stjórnarmanna hvað dagleg afskipti varðar af áhættustýringu og eftirliti með henni. Mikil síló menning sé til staðar innan fjármálafyrirtækja sem hugsanlega geti gert það að verkum að göt myndist í áhættustýringu og eftirlitsumhverfinu og ekki sé brugðist við mikilvægum áhættuþáttum. Erfitt sé að innleiða áhættuvilja stjórnar og viðmið um áhættu inn í starfsemi fyrirtækjanna og að umgjörð við áhættustýringu sé almennt of flókin og ómarkviss. Viðhorf og menning til áhættustýringar sé jafnframt áhersluatriði. Niðurstaðan úr verkefninu er að aukin samvinna og samþætting auðlinda hjá þeim sem starfa við áhættustýringu og eftirlitsumhverfið geti auðveldað fyrirtækjum að bregðast við þessum atriðum. Fyrirtæki ættu að stefna að því að viðhafa fyrirkomulag um heildstæða áhættustýringu. Skilgreina má heildstæða áhættustýringu sem stöðu þar sem allir aðilar í áhættustýringu og eftirlitsumhverfinu samhæfa vinnu sína á formlegan hátt og ljóst sé hvaða áhætta tengist markmiðum fyrirtækisins í heild og hvaða áhættuþættir hafa verið metnir og brugðist við. Fyrirkomulagið geri stjórn og æðstu stjórnendum auðveldara um vik að sinna ábyrgð sinni hvað varðar áhættustýringu og eftirlit með henni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Karlotta Svavarsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22057
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22057

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Karlotta Svavarsdóttir 1977-. Hvað er heildstæð áhættustýring og hvernig má leggja mat á virkni hennar?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22057