Back to results

Bifröst University

Lean Cabin - Icelandair : hver var árangur Icelandair á innleiðingu Lean Cabin?

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig innleiðing flugfélagsins Icelandair á straumlínustjórnun gekk upp, þegar hún var innleidd um borð í allar vélar Icelandair. Hver markmið fyrirtækisins voru, hvaða aðferðir þau notuðu og hver árangur innleiðingarinnar var. Notast var að miklu leiti við fræðibækur sem skrifaðar hafa verið um straumlínustjórnun. Farið var í söguna og hvernig straumlínustjórnun varð til, hvernig hún þróaðist og hvernig hún nýtist fyrirtækjum. Farið var ítarlega í innleiðingarferli straumlínustjórnunar og hvernig best er að innleiða hana í fyrirtæki. Það var svo borið saman við innleiðingu Icelandair, markmið þeirra og árangur. Tekin voru tvö viðtöl til þess að fá fleiri sjónarhorn á innleiðinguna. Icelandair sendi einnig út spurningarkönnun þar sem kannað var viðhorf starfsmanna við innleiðingu á straumlínustjórnun í fyrirtækið. Helstu niðurstöður sýna að innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Icelandair er ekki lokið og er straumlínustjórnun auk þess aðferð sem hættir aldrei. Icelandair er á stigi þrjú af fjórum í sinni innleiðingu. Starfsmenn Lean cabin eru ánægðir með þá vinnu sem hefur verið gerð og vilja sjá áframhaldandi vinnu í anda Lean cabin. Markmið sem Icelandair setti sér í byrjun hafa náðst. Spurningakönnun sem sett var fram af Icelandair og sýndu niðurstöður að aðeins brot af starfsmönnum svaraði, niðurstöður hennar voru þó góðar og gagnlegar Icelandair. Icelandair þarf að hvetja og virkja starfsfólk sitt betur til þess að ná að greina betur þá vinnu sem lögð er í Lean cabin. Icelandair hefur ekki farið eftir ákveðnu innleiðingarferli í sinni innleiðingu og er það eitthvað sem talið er geta hjálpað fyrirtækinu að ná lengra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22053
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22053

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir 1990-. Lean Cabin - Icelandair : hver var árangur Icelandair á innleiðingu Lean Cabin?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22053