Back to results

Bifröst University

Krísustjórnun : hvað ber að varast þegar krísa skellur á skipulagsheildum?

Abstract

dc:description.abstract

Sagan hefur sýnt að krísur geta skollið með miklum þunga á skipulagsheildum af öllum stærðum og gerðum. Þegar krísa ber að garði standa stjórnendur einatt frammi fyrir því að þurfa taka erfiðar ákvarðanir undir miklum þrýstingi. Þá geta krísur orðið keðjuverkandi og teygt anga sína víða. Stjórnendum eru ýmsar leiðir færar til þess að koma í veg fyrir, takast á við eða milda krísuástand. Markmið rannsóknarinnar var að leitast við því að svara hvað ber að varast þegar krísa skellur á skipulagsheildum og hvað einkenni góða stjórnunarhætti á krísutímum. Til þess að svara þessu valdi rannsakandi tvö aðskilin tilvik sem tekin voru til rannsóknar. Fyrri tilviksrannsóknin var gerð á viðbrögðum Ölgerðarinnar, í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar, þegar ljóst varð að fyrirtækið hafi selt matvælafyrirtækjum iðnaðarsalt um langt skeið. Síðari tilviksrannsóknin var framkvæmd til þess að varpa ljósi á viðbrögð K.S.Í við neikvæðri fjölmiðlaumfjöllun eftir að ljóst varð að sambandið hafði opnað fyrir miðasölu á landsleik Íslands og Króatíu á miðasöluvefnum midi.is klukkan fjögur að nóttu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að Knattspyrnusamband Íslands fór þvert á lykilreglur krísustjórnunar en Ölgerðin stóð sig vel að mörgu leyti m.t.t áherslna krísustjórnunar. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að einkenni góðra stjórnunarhátta á krísutímum ráðist af samspili margra mismunandi áhrifaþátta. Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að lítið megi út af bregða í samskiptum á krísutíma og að óhreinskilni virki þar eins og olíu sé hellt á eld.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Egill Magnússon 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22046
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22046

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Egill Magnússon 1989-. Krísustjórnun : hvað ber að varast þegar krísa skellur á skipulagsheildum?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22046