Bifröst University
Íslensk netverslun : greining á samkeppnisumhverfi íslenskra netverslana
Abstract
dc:description.abstractÖrt stækkandi hópur tölvu- og netnotenda hefur leitt af sér auknar kröfur um aðgengi að verslun og þjónustu á netinu. Neysla á netinu hefur margfaldast á seinustu árum og bendir ekkert til annars en að sú þróun haldi áfram á næstu misserum. Tilgangur: Tilgangur rannsóknar var að greina samkeppnisumhverfi íslenskra netverslana. Aðferð: Tekin voru þrjú eigindleg einstaklingsviðtöl. Viðmælendur voru aðilar í stjórnunarstöðum innan netverslana á landinu. Viðtölin voru hljóðrituð og greind í þemu með innihaldsgreiningu. Niðurstöður: Eitt aðalþema var greint úr viðtölunum: Samkeppnisleg staða íslenskra netverslana. Aðalþema greindist síðan niður í sex undirflokka sem voru þessir: fjölbreytni í afhendingarmáta, póstsendingar kostnaðarsamar, aðgengi viðskiptavina, pólitískt umhverfi, hár inngangsþröskuldur og eiginleiki netverslunar. Ályktanir: Samkeppnishæfni íslenskra netverslana er góð að mörgu leiti hér á landi hvort sem horft er til hefðbundinnar verslunar eða netverslana erlendis. Þrátt fyrir að erfitt geti verið að keppa við erlendar verslanir í verði þá hafa netverslanir á Íslandi ýmsa þætti sem hafa ákveðið virði í huga neytanda eins og traust, ábyrgð, skilarétt og fjölbreytileika í afhendingarmáta og tíma. Einnig hafa netverslanir forskot á hefðbundnar verslanir þegar kemur að þægindum, opnunartíma og aðgengi. Lykilhugtök: Vefverslun, netverslun, samkeppni, póstþjónusta og netnotkun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björn Kristjánsson 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22045
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22045