Back to results

Bifröst University

Hvernig vinna íslenskir ferðaþjónustuaðilar markaðssetningu á netinu? Aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um það hvernig íslenskir ferðaþjónustuaðilar vinna markaðssetningu á netinu. Til þess að afmarka viðfangsefnið en frekar lagði höfundur sérstaka áherslu á að skoða aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu. Straumur ferðamanna til Íslands er sífellt að aukast og hlutfall þeirra sem bókar ferðina sína í gegnum netið beint af heimasíðu flugfélaga er 38,8% og eru það 36,1% sem bóka í gegnum síður eins og Expedia eða Dohop. Icelandair á sér langa sögu en fyrirtækið á rætur sínar að rekja til ársins 1937 og er stærsta flugfélag Íslands. Icelandair er sífellt að bæta við sig áfangastöðum og því mikilvægt að þeir haldi áfram að minna á sig og séu með sterka viðveru á netinu. Þjónusta Icelandair þarf að vera í lagi ef þeir eiga að geta nýtt sér samfélagsmiðla í markaðsstarfi sínu. Það er ekki vænlegt að vera með söluskilaboð á samfélagsmiðlum ef miðillinn er svo full af kvörtunum frá óánægðum viðskiptavinum. Tekin voru viðtöl við aðila í markaðsdeild Icelandair og verkefnastjóra hjá Íslandsstofu. Tilgangurinn var að fá innsýn í aðferðafræðina sem þessir aðilar beittu við markaðssetningu hjá þessum fyrirtækjum. Framkvæmd var eigindleg rannsókn og var notast við hálfopin viðtöl en í hálfopnum viðtölum biður rannsakandi viðmælanda sinn um að tala um viðfangsefnið. Hálf opin viðtöl eru svokallaðar stýrðar samræður og í þeim tilangi að fá sem mest út úr þessum viðtölunum var höfundur búinn að setja saman spurningarlista sem var sendur á viðmælendur áður en viðtalið fór fram svo þeir myndu vita hverju væri ætlast til af þeim. Eigindleg rannsókn varð fyrir valinu til þess að hægt væri að fá dýpri skilning á aðferðafræði fyrirtækjanna heldur en væri hægt ef um megindlega aðferð væri að ræða. Önnur ástæða fyrir eigindlegri rannsókn er sú að höfundur vildi geta borið upp spurningar sem kynnu að vakna á meðan viðtölunum stóð. Höfundur gerir sér grein fyrir því að það eru kostir og gallar varðandi þessa aðferð, til dæmis er það sem kemur fram litað af þeim einstaklingi sem verið er að ræða við og að öllum líkindum hefðu komið öðruvísi niðurstöður ef öðruvísi aðferð hefði verið beitt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgitta GUðmundsdóttir Bender 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22044
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22044

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta GUðmundsdóttir Bender 1984-. Hvernig vinna íslenskir ferðaþjónustuaðilar markaðssetningu á netinu? Aðferðafræði Icelandair og Íslandsstofu. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22044