Back to results

Bifröst University

Markaðsáætlun fyrir Hópferðamiðstöðina Trex

Abstract

dc:description.abstract

Ferðamannastraumurinn hefur vaxið ört á Íslandi á síðustu árum og samkvæmt spám verður ekkert lát á honum á næstu árum. Frá árinu 2008 hefur komum ferðamanna til landsins fjölgað um nærri helming og það er heilmikil aukning. Með fjölgun á komum ferðamanna skapast mikil tækifæri fyrir fyrirtækin í ferðaþjónustunni en um leið mikil samkeppni. Nýliðun í greininni er mikil og fjölbreytni í framboði á afþreyingu fyrir ferðamenn hefur aukist. Hópferðamiðstöðin Trex hefur staðið sig vel á þessum markaði í nærri 38 ár en þarf að bæta verkefnastöðu sína á lágönn og jafna árstíðasveiflu í rekstrinum sem einkennir ferðamannaiðnaðinn hér á landi. Haft hefur verið eftir Abraham Lincoln forseta Bandaríkjanna að besta leiðin til að spá fyrir um framtíðina er að skapa hana sjálfur. Að skapa tækifæri framtíðar er verkefnið sem er framundan hjá fyrirtækinu þannig að það sitji ekki eftir á stækkandi markaði. Markmið ritgerðarinnar er að setja fram raunhæfa markaðsáætlun fyrir Hópferðamiðstöðina Trex svo að fyrirtækið nái að halda í við öra þróun og að stækka og eflast enn frekar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Agnes Vilhelmsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22041
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22041

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Agnes Vilhelmsdóttir 1964-. Markaðsáætlun fyrir Hópferðamiðstöðina Trex. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22041