Bifröst University
Rannsókn á framkvæmd og stjórnun kirkjutónlistar á grunni Tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar : auðlindir, virðisauki, virðiskeðja og SVÓT-greining.
Abstract
dc:description.abstractHefur framkvæmd Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar leitt til þess að hún hafi sem mestan virðisauka af auðlindum sínum? Framkvæmd og stjórnun kirkjutónlistar eru hér greind með aðferðum stefnumótunarfræðanna á grundvelli Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar. Með því að velja aðferðir stefnumótunarfræðanna, verður til hugtakarammi og orðaforði til þess að fjalla um fyrirbærið kirkjutónlist sem geira innan Þjóðkirkjunnar, með áherslu á átök milli ólíkra hagsmunaaðila. Það getur nýst stjórnendum í kirkjutónlistargeiranum innan Þjóðkirkjunnar við hugsanlegar breytingar á Tónlistarstefnunni og við vinnu á grunni hennar með aðferðum stefnumiðaðrar stjórnunar. Með þessari rannsókn eru auðlindir kirkjutónlistarinnar greindar, eins og þær eru settar fram í Tónlistarstefnunni og starfsreglum eftir því sem við á. Virðiskeðja kirkjutónlistar er sett fram til að greina hvar og hvernig myndun virðisauka á sér stað. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar fram sem auðlindagreining annars vegar, en SVÓT greining á framkvæmd og stjórnun Tónlistarstefnunnar hins vegar. Rannsóknin er hugsuð sem innlegg í umræðu sem á sér stað innan Þjóðkirkjunnar og meðal hagsmunaaðila á sviði kirkjutónlistar. Niðurstöðurnar geta nýst við að greina mögulegar leiðir til úrbóta og sú aðferð og kortlagning sem hér er notuð við greiningu á kirkjutónlist hefur hagnýtt gildi, auk þess að vera gott yfirlit sem byggja má frekari rannsóknir á.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kári Allansson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22032
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22032