Bifröst University
Tækifæri Íslands á Norðurslóðum : samkeppnishæfni umskipunarhafnar fyrir norðurslóðir á Íslandi, hagkvæmni og fjárfestingaþörf
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar ritgerðar er að rannsaka hvort umskipunarhöfn á Íslandi er samkeppnishæfur kostur fyrir fjárfesta sem áhuga hafa á siglingum yfir Norður-Íshafið. Loftslagsbreytingar hafa valdið því að hafís á norðurslóðum er í breyttri mynd frá því sem áður var, bæði vegna minnkandi yfirborðs og meiri hreyfanleika, og er það talið opna á nýjar siglingaleiðir milli austurs og vesturs. Til þess að greina samkeppnishæfni verður mið tekið af markaðshlutunaraðferð Kotlers og lagst í rannsókn á því hvaða hlut fluttra gámaeininga er raunhæft að höfn á Íslandi umskipi. Dreifingarhlekkur Virðiskeðju Porters verður notaður til þess að meta staðsetningu umskipunar til verðmætasköpunar og loks varpað ljósi á helstu styrkleika og tækifæri umskipunarhafnar á Íslandi til þess að ná samkeppnisforskoti til langs tíma. Þá verður arðsemismat framkvæmt með því að setja upp helstu kostnaðar- og tekjuliði með samanburðaraðferð við verðmat. Með núllpunktagreiningu verður í kjölfarið sagt til um fjölda gámaeininga sem umskipa þarf til þess að skila hagnaði. Litið verður til þess hvernig eignarhald hafnarsvæða er í dag og með hvaða fyrirkomulagi einkaaðilar hafa komið að rekstri hafna. Umskipunarhöfn, Norður-Íshaf, samkeppnishæfni, arðsemi, fjárfestar
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Pálsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20646
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20646