Abstract
dc:description.abstractHér verður í örstuttu máli greint frá helstu hugtökum, tilgátum og aðferðum sem beitt var við ritgerðarvinnuna og stuttlega sagt frá helstu niðurstöðum og hvernig túlka megi þær. Viðfangsefni ritgerðarinnar er gerð markaðsáætlunar fyrir Selasiglingar ehf. og er hún byggð upp eftir forskrift markaðsáætlunar Philips Kotlers sem inniheldur átta aðskilda kafla. Farið er yfir forsögu og núverandi stöðu Selasiglingar og fjallað um þann markað sem fyrirtækið starfar á svo sem greining á þeim markaðsaðstæðum sem fyrirtækið býr við, hlutdeild þess á markaði, stærð hans og slíkt. SWÓT greining er gerð auk þess sem sett er fram aðgreining og staðfærsla Selasiglingar með Porters samkeppnisgreiningu. Einnig eru markhópar skilgreindir. Gerð var megindleg rannsókn sem ætlað var að skilgreina markhóp Selasiglingar sem og að kanna með hvaða hætti best væri að ná til hans. Niðurstöður þeirrar rannsóknar sýna að dæmigerður þátttakandi hennar var 26 ára eða eldri, vel menntaður barnlaus Evrópubúi, giftur eða í sambúð sem ber umhyggju fyrir náttúrunni og hefur áhuga á almennri útivist. Viðkomandi, er eigandi að Android snjallsíma og leitar sér ferðaupplýsinga með hjálp leitarvéla á netinu og fékk upplýsingar um þjónustu Selasiglingar frá ferðahandbókinni Lonely Planet eða öðrum ferðahandbókum. Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar setti höfundur fram framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir Selasiglingar til næstu fimm ára (2015 – 2020).
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna María Elíasdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20642
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20642