Back to results

Bifröst University

Habitus leikarans : Pierre Bourdieu vs. Mike Leigh

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að athuga hvort og að hvaða leyti persónusköpunarferli leikara geti haft áhrif á habitus þeirra. Rýnt verður í sköpunarferli leikara með mann- og félagsfræðilegum augum þar sem stuðst verður við kenningar úr smiðju franska félagsvísindamannsins Pierre Bourdieu um habitus og tengd hugtök. Til að afmarka þýði rannsóknarinnar var einblínt á þá leikara sem hafa unnið eftir nálgunum breska kvikmyndaleikstjórans Mike Leigh í persónusköpun. Sú aðferðafræði hentar rannsókninni einnig vel þar sem leikarar fara í ítarlegt rannsóknarferli í persónusköpun sinni ásamt því að aðferðin kallast á við rannsóknir á habitus. Rannsóknin er eigindleg og voru hálfopin-djúpviðtöl tekin við leikara og leikstjóra sem unnið hafa eftir nálgunum Mike Leigh í persónusköpun. Megin þema viðtalanna var tvískipt. Annars vegar voru viðmælendur spurðir um uppvaxtarárin, fjölskyldubönd og félagsleg tengsl til að draga upp mynd af habitus þeirra og hins vegar um persónulega reynslu þeirra af persónusköpunarferli. Þemagreining var notuð við úrvinnslu á viðtölunum þar sem niðurstöðurnar voru flokkaðar í sömu þemu og notast var við í viðtalsrammanum. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að sköpunarferli leikara hafi merkjanleg áhrif á þá sem hefur svo mótandi áhrif á habitus þeirra. Viðfangsefnið, habitus leikara er óplægður akur og telur rannsakandi að möguleikarnir á viðameiri rannsóknum séu miklir og afar spennandi. Niðurstöður viðamikillar rannsóknar á habitus leikara gætu bæði nýst á hagnýtan og faglegan hátt, bæði á sviði félags- og hugvísinda. Lykilorð: Habitus, leikari, Pierre Bourdieu, persónusköpunarferli, svið, auðmagn, Mike Leigh, leikpersónur, tálsýn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Davíð Freyr Þórunnarson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20604
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20604

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Freyr Þórunnarson 1978-. Habitus leikarans : Pierre Bourdieu vs. Mike Leigh. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20604