Back to results

Bifröst University

Upplifun tjónþola af viðbrögðum stofnana í kjölfar Suðurlandsskjálftans 2008

Abstract

dc:description.abstract

Þann 29. maí 2008 reið jarðskjálfti yfir Suðurland. Mældist styrkur hans 6,3 á Richter. Skjálftinn olli engu manntjóni en eignatjón varð gífurlegt. Mikið mæddi á björgunaraðilum sem og þeim aðilum er komu að matsstörfum á skemmdum er orðið höfðu. Stjórnvöld og matsaðilar lögðust á eitt til að sem best og hraðast mætti bæta það tjón sem orðið hafði og reisa samfélagið við að nýju. Í þessu verkefni var kannað hvernig til tókst að mati tjónþola. Rætt var við fulltrúa tveggja matsaðila er að málinu komu og sex tjónþola og bækur þeirra bornar saman. Fulltrúar matsaðila annars vegar og tjónþolar hinsvegar fengu sömu spurningar og voru samræður skapaðar út frá því. Ljóst er að mikill metnaður fulltrúa stjórnsýslu og tryggingafélaga sem og lærdómur er dreginn var af fyrri hamförum skilaði sér í góðu og skilvirku starfi sem leiddi af sér ánægju flestra tjónþola. Er það aðdáunarverður árangur miðað við svo erfiðar aðstæður sem raun ber vitni. Mikilvægt er þó að yfirfara og uppfæra vinnureglur og vinnuferla reglulega til að þeir séu ávallt í takt við samfélagsmyndina hverju sinni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Ólason 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20572
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20572

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Ólason 1976-. Upplifun tjónþola af viðbrögðum stofnana í kjölfar Suðurlandsskjálftans 2008. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20572