Bifröst University
Ég á mig sjálf : stærri markaður, meiri vinna og minni tekjur í tónlistariðnaði nútímans
Abstract
dc:description.abstractÉg á mig sjálf er rannsóknarritgerð um sjálfstætt starfandi tónlistarfólk og áhrif breytinga á starfsumhverfi þeirra, útgáfumál, tækifæri og afkomu. Nútímatækni á borð við streymi og tónlistarveitur ásamt breytingum á neyslu almennings hefur haft mikil áhrif á útgáfumál og rekstrarafkomu tónlistarfólks sem enn sér ekki fyrir endann á og skapar óvissu þegar kemur að útgáfumálum og rekstrarafkomu. Leitast er við að svara spurningum á borð við hvernig tónlistarfólk upplifir þær breytingar sem fylgt hafa tónlistariðnaði nútímans og hvaða áhrif þær hafa haft á tækifæri og störf óháðra og sjálfstætt starfandi tónlistarmanna. Efni ritgerðarinnar er sett í samhengi við erlendar samtíma rannsóknir á breytingum og þróun tónlistariðnaðarins og áhrifa þeirra á tónlistarfólk. Menningarfræðileg umfjöllun um menningariðnaðinn, listina og viðhorf til nútímans er skoðuð og tengd við efnið og þær breytingar sem eru til umræðu. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf og sýn tónlistarfólks á ýmsa af þeim mikilvægu þáttum sem skapandi listamenn þurfa að fást við í tónlistariðnaði nútímans. Rætt var við íslenskt tónlistarfólk með mikla reynslu og þekkingu af tónlistargeiranum en leitast er við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Er samhljómur á viðhorfum og upplifun hjá sjálfstætt starfandi tónlistarfólki þegar litið er á áhrif hins nýja tónlistariðnaðar á listsköpun, útgáfumál, rekstrarfyrirkomulag eða nýtingu tækifæra? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að upplifun tónlistarfólks á breyttum aðstæðum er á margan hátt svipuð og það leggur áherslu á líka þætti í starfi sínu. Minnkandi sala á geisladiskum er staða sem allir eru að upplifa á meðan streymi sækir stöðugt í sig veðrið. Tekjur fyrir streymi eru engan veginn að bæta upp það tekjutap sem minnkandi geisladiskasala hefur í för með sér en hópfjármögnun á nýjum útgáfum og aukning á sölu vínylplatna er ljós í myrkrinu. Helstu tekjur tónlistarfólks í dag koma frá tónleikahaldi og sölu ýmiskonar varnings á tónleikum en einnig geta stefgjöldin verið drjúg. Sú breyting hefur orðið á starfi tónlistarfólks að nú er ekki eingöngu farið í tónleikaferðir til að kynna nýjar plötur heldur til að afla tekna og vera í beinu sambandi við aðdáendur. Samfélagsmiðlar eru mikilvægir í tónlistariðnaði nútímans en aðdáendur bera hróður listafólks áfram og kynna fyrir nýju fólki. Sala á tónlist í kvikmyndir og auglýsingar er einnig mikilvægur tekjustofn en það krefst þekkingar og þolinmæði að sækja á þann markað. Samvinna og gott tengslanet er tónlistarfólki nauðsyn en meðal helstu samstarfsaðila sem þarf að hafa í sínum röðum má nefna umboðsmenn, kynningafulltrúa, tónlistarforleggja og tónleikabókara. Rannsakaðir eru þættir sem snerta störf tónlistafólks og reynt að greina áhrif og breytingar út frá lýsingum viðmælenda með tilliti til aukins aðgengis aðdáenda að streymisveitum og tónlist á netinu. Fjallað er um hverjir tekjustofnarnir eru í miðri stafrænu byltingunni og um samdrátt sölu tónlistar í áþreifanlegu formi sem verður ekki við snúið þrátt fyrir nokkra ljósa punkta eins og endurvakningu vínylplötunnar. Lykilorð: Tónlist, tónlistarfólk, tónlistariðnaður, rekstur, skipulag, sjálfstæðir, óháðir, útgáfumál, tónlistarveitur, plötur, streymi, stafræn tónlist, tónleikahald, nútíminn, tekjur, tækni, tækifæri, Ísland, internet, tónlistarfræði, menningarfræði, menningarstjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhann Ágúst Jóhannsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20567
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20567