Back to results

Bifröst University

Ógilding vegna tilurðar samnings : sönnunarbyrði fyrir Hæstarétti

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari greinargerð er farið yfir ógildingarreglur samningaréttar vegna tilurðar samnings. Þá er litið til dómaframkvæmdar Hæstaréttar til að sjá hvernig sönnunarbyrði í slíkum málum liggur. Í upphafi greinargerðarinnar er fjallað stuttlega um samningarétt og tvær helstu meginreglur réttarsviðsins, reglurnar um samningafrelsið og að samninga skuli efna. Mun síðan vera farið í skilgreiningar á því hvað samningar og löggerningar séu. Í framhaldi kemur umfjöllum um íslensku samningalögin ásamt þær breytingar sem gerðar hafa verið á þeim í gegnum tíðina. Mun þar á eftir vera farið í ógildingar á samningum, skilgreiningu á grandvísi og grandleysi. Þá verða einnig viljakenningunni og traustkenningunni gerð skil. Af því loknu verður farið yfir þær ástæður er leiða til ógildingar og taldar eru falla undir tilurð samnings, meiri- og minniháttar nauðung, svik, misneytingu, mistök, afbökun, og málamyndagerninga. Í upphafi hver kafla verður leitast við að skilgreina þau hugtök sem verða tekin fyrir hverju sinn og mun þar á eftir koma fræðileg umfjöllun. Í lokin mun síðan vera farið yfir dóm til skýringar á túlkun dómstóla á viðfangsefni hverju sinni og hvenær þeir telja að skilyrðum laga sé uppfyllt. Helstu niðurstöður eru að sönnunarbyrði liggur á þeim einstaklingi sem fer fram á ógildingu á samningi. Þá er jafnframt ljóst að ógildingarheimildir samningaréttar eru undantekningar frá meginreglunni um að samninga beri að efna og því hafa dómstólar farið sér hægt í að ógilda samninga og túlka ákvæði samningalaga þröngt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20555
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20555

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir 1984-. Ógilding vegna tilurðar samnings : sönnunarbyrði fyrir Hæstarétti. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20555