Abstract
dc:description.abstractHælisleitendur hafa verið mikið í umræðunni undanfarin ár vegna mikillar fjölgunar á umsóknum hérlendis, og þá sérstaklega í Reykjanesbæ þar sem það var eina bæjarfélagið til loka ársins 2013 sem sá um að þjónusta hælisleitendur. Nú hefur verið gerður samningur við Reykjavíkurborg sem tók gildi 1. janúar 2014. Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða hver kostnaðurinn er við uppihald hælisleitenda í Reykjanesbæ og framkvæma jafnframt könnun á meðal íbúa í Reykjanesbæ, sem og á höfuðborgarsvæðinu til samanburðar, til að kanna hversu mikið íbúar vita um kostnaðinn og hvað þeir ætli að hælisleitendur séu í raun að fá til ráðstöfunar. Einnig var spurt út í viðhorf og vitneskju íbúa á málefninu. Settar voru fram tvær tilgátur. Tilgáta 1: „Íbúar Reykjanesbæjar halda að kostnaður vegna hælisleitenda sé meiri en raun ber vitni“. Tilgáta 2: „Viðhorf íbúa Reykjanesbæjar í garð hælisleitenda er neikvætt“. Niðurstöður leiddu í ljós að bæði íbúar Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins telja að hælisleitendur fái mun meira til ráðstöfunar á mánuði en raun ber vitni. Viðhorf íbúa í Reykjanesbæ er í heildina neikvætt, þeir eru ekki sáttir við búsetu hælisleitenda í bæjarfélaginu og telja þá mjög áberandi. Túlka má niðurstöðurnar sem svo að vegna þess hve lítið bæjarfélagið er þá séu hælisleitendur mun meira áberandi en á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir falla betur í fjöldann. Eins hafa þeir verið mun lengur í þjónustu á Suðurnesjum, þeim fjölgað ört á síðustu árum og því hafa þeir verið meira áberandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna María Jónsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20540
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20540