Back to results

Bifröst University

Markaðssetning á netinu í ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Markaðurinn í dag er að miklu leyti orðinn landamæralaus og þarf markaðssetning á netinu hjá afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu að mæta því á margan hátt. Farið var yfir það hvernig markaðssetningu á netinu er háttað hjá afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu á Íslandi og Írlandi, hvernig fyrirtækin nýta sér fræðilegar kenningar við markaðssetninguna og það samstarf sem fer fram milli einkaaðila og þess opinbera. Spurningalisti var sendur á 200 fyrirtæki í afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og á Írlandi þar sem spurt var út í ýmislegt tengt markaðssetningu á netinu s.s. þá miðla sem fyrirtækin nýta sér, hvernig löndin nýta sér fræðin og tengingu þeirra við hið opinbera. Helstu niðurstöður voru þær að bæði lönd nýta sér fræðilegar kenningar við uppbyggingu markaðssetningar sinnar á netinu og gegnir leitarvélabestun (e. search engine optimization, SEO) mjög stóru hlutverki þegar kemur að því að fá neytendur inn á eigin miðla fyrirtækjanna. Einnig gegna opinberir aðilar stóru hlutverki bæði á Íslandi og Írlandi en þeir hafa áhrif á bæði beinan og óbeinan hátt, með sínu eigin markaðsstarfi sem og með því að veita fyrirtækjunum aðstoð við markaðssetningu á netinu á ýmsan hátt. Í heildina litið hafa báðar þjóðir sína styrkleika og sína veikleika. Íslendingar nýta betur þá miðla sem í boði eru og nota þá til þess að njóta góðs af þeim mikla ferðamannafjölda sem heimsækir landið en Írar njóta betri leiðsagnar frá hinu opinbera og nýta hana í sinni markaðssetningu á netinu. Báðar þjóðir hafa rúm fyrir bætingu og má þá helst nefna betri aðkomu þess opinbera að aðstoð og leiðsögn við netmarkaðssetningu á Íslandi og betri blandaðri nýtingu miðla á Írlandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Dögg Eiríksdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20538
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20538

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Dögg Eiríksdóttir 1986-. Markaðssetning á netinu í ferðaþjónustu. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20538