Back to results

Bifröst University

Samspil jafnræðisreglna og tekjuskattslaga : ákvæði tekjuskattslaga um barnabætur og vaxtabætur

Abstract

dc:description.abstract

Jafnræðisreglan kveður í stuttu máli á um að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og öll mismunun sé óheimil. Samkvæmt því ætti skattlagning aðila í sömu stöðu að vera eins. Umfjöllunarefni ritgerðar þessarar snýr að samspili jafnræðisreglunnar og ákvæða tekjuskattslaga nr. 90/2003, hvað varðar ákvörðun barnabóta og vaxtabóta. Jafnræðisregluna er að finna í stjórnarskránni og þar sem stjórnarskráin er æðri og rétthærri öllum öðrum lögum mega ákvæði almennra laga ekki brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Í þeim tilvikum víkja ákvæði almennra laga og verður því ekki á þeim byggt. Ákvæði tekjuskattslaga um ákvörðun barnabóta fela í sér að einstæðum foreldrum skuli greiddar hærri barnabætur en hjónum miðað við sama aldur og fjölda barna og sömu heildartekjur heimilis. Slík mismunun getur verið réttlætanleg ef fyrir hendi eru málefnalegar ástæður. Í lögum, eða lögskýringagögnum, eru þó ekki að finna skýringar eða ástæður fyrir þessari mismunun. Lán vegna verulegra endurbóta á íbúðarhúsnæði til eigin nota mynda einungis stofn til vaxtabóta ef um er að ræða lán frá Íbúðalánasjóði. Í lögskýringargögnum kemur fram að ástæða þessarar takmörkunar sé að með þessum hætti sé eftirlit með greiðslu vaxtabóta einfaldara, þar sem skilyrði íbúðalánasjóðs fyrir lánveitingu eru þau sömu og skilyrði tekjuskattslaga fyrir greiðslu vaxtabóta. Skilyrði annarra lánastofnana fyrir lánveitingu vegna verulegra endurbóta eru þó að mestu leyti þau sömu og skilyrði Íbúðalánasjóðs. Rök fyrir þessari mismunun eru á verulega veikum grunni reist

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Gunnsteinn Harðarson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19937
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19937

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Gunnsteinn Harðarson 1978-. Samspil jafnræðisreglna og tekjuskattslaga : ákvæði tekjuskattslaga um barnabætur og vaxtabætur. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19937