Back to results

Bifröst University

Útvistun í steypuskála Alcoa Fjarðaáls

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna kosti og galla útvistunar í steypuskála Alcoa Fjarðaáls. Frá upphafi reksturs verksmiðjunnar á Íslandi hefur útskipunarferli verið útvistað til Eimskipafélags Íslands. Rannsóknarspurningar verkefnisins byggja á því að svarað sé annars vegar út frá rekstrarlegum samanburði eiginframkvæmdar við kostnað útvistunarsamnings við Eimskip og hins vegar almennt um kosti og galla samningsins. Við vinnslu verkefnisins var stuðst við megindlegar og eigindlegar aðferðir. Hálfopin viðtöl voru framkvæmd við stjórnendur Alcoa Fjarðaáls um málefnið og þeirra sýn á útvistunina. Öflun tölulegra gagna frá rekstri og samningum Alcoa Fjarðaáls voru forsendur útreiknings á eiginframkvæmd samanborið við núverandi samningsverð Eimskips. Framkvæmd var vettfangsrannsókn út frá áherslum straumlínulögunar ferlisins og mannaflaþörf skilgreind. Niðurstöður verkefnisins benda til tækifæra sem getur komið Alcoa Fjarðaáli til hagsbóta með breyttu fyrirkomulagi á mannafla og samnýtingu annarra ferla. Heildarsparnaður þeirra tækifæra getur verið umtalsverður. Kostir og gallar útvistunar geta vegið misþungt, hvort sem það er í starfsmannamálum, þekkingu, flækjustigi ferlisins, fákeppni eða rekstrarlegum niðurstöðum en áherslur og stefnur fyrirtækja hafa þar mikið að segja um heildarmat á útvistuninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Davíð Þór Sigurðarson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19011
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19011

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Þór Sigurðarson 1983-. Útvistun í steypuskála Alcoa Fjarðaáls. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19011