Back to results

Bifröst University

Áhrif vinnslu tjörusands á efnahags-, umhverfis- og félagslega þætti sjálfbærrar þróunar : hvað orsakaði það að nýjar aðferðir við vinnslu jarðefnaeldsneytis hófust sem áður þóttu of kostnaðarsamar og hvaða afleiðingar hefur sú vinnsla haft í för með sér?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara því hvað orsakaði það að nýjar aðferðir við vinnslu jarðefnaeldsneytis hófust sem áður þóttu of kostnaðarsamar og hvaða afleiðingar hefur sú vinnsla haft í för með sér. Sérstök áhersla verður lögð á vinnslu olíu úr tjörusandi í Kanada og áhrif hennar á efnahags-, umhverfis- og félagslega þætti sjálfbærrar þróunar. Í upphafi er fjallað um hugtakið sjálfbæra þróun. Því næst er farið yfir sögu jarðefnaeldsneytis, bæði nýtingu og verðþróun. Í því samhengi verður fjallað um kenningar bandarísku jarðfræðinganna M. King Hubbert og Kenneth M. Deffeyes um hámarksframleiðslu á olíu (e. peak oil) og yfirvofandi olíuskort. Í framhaldi af því eru skilgreiningar á olíubirgðum skoðaðar og hvar í heiminum þær er að finna. Því næst eru þrjár nýjar aðferðir við vinnslu jarðefnaeldsneytis skoðaðar; vinnsla olíu með djúpsjávarborun, vinnsla gass setsundrun (e. fracking) og vinnsla olíu úr tjörusandi. Í lokakaflanum er fjallað um baráttu umhverfisverndunarsinna gegn neikvæðum áhrifum jarðefnaeldsneytisvinnslunnar og kannað hvort sú barátta hafi skilað einhverjum árangri. Helstu niðurstöður eru þær að farið var að nota nýjar aðferðir við jarðefnavinnsla vegna þess að olíuverð hækkaði og hefðbundnar olíulindir fóru þverrandi. Hærra olíuverð gerði það að verkum að nýju aðferðirnar urðu hagkvæmar. Hins vegar fylgja þeim gríðarlegar umhverfislegar afleiðingar, sem aftur skaða menn og vistkerfið í heild sinni. Þar sem gríðarlegt fjármagn er í orkuiðnaðinum á hann auðvelt með að hafa áhrif á yfirvöld. Því bendir allt til þess að iðnaðurinn fari stækkandi á kostnað umhverfisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stella Sif Jónsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18965
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18965

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stella Sif Jónsdóttir 1987-. Áhrif vinnslu tjörusands á efnahags-, umhverfis- og félagslega þætti sjálfbærrar þróunar : hvað orsakaði það að nýjar aðferðir við vinnslu jarðefnaeldsneytis hófust sem áður þóttu of kostnaðarsamar og hvaða afleiðingar hefur sú vinnsla haft í för með sér?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18965