Back to results

Bifröst University

Alþjóðavæðing samfélagsmiðla : greining, kortlagning og samanburður á helstu einkennum við uppsetningu á samfélagsmiðlum út frá sjónarmiðum frumkvöðla.

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á þætti sem skipta sköpum í árangri samfélagsmiðla (e. social media) á alþjóðamarkaði. Markmið rannsóknarinnar er að kynnast upplifun og reynslu frumkvöðla sem hefur tekist og eru að alþjóðavæða sína samfélagsmiðla. Samfélagsmiðlar hafa farið vaxandi og breytt heiminum að miklu leyti og opnað fjöldan allan af tækifærum. Með tilkomu samfélagsmiðla hafa einstaklingar orðið upplýstari um hvað sé um að vera. Mikið af samfélagsmiðlum hafa sprottið upp á undanförnum árum og allir standa þeir frammi fyrir sömu áskoruninni, að fá fólk til að nýta sér þá og deila áfram til annarra. Í ritgerðinni verður leitast eftir því að gefa einstaklingum og fyrirtækjum svör við því hvaða þættir virka best þegar á að markaðssetja og alþjóðavæða samfélagsmiðla. Notast er við eigindlega aðferðafræði. Reynsla viðmælenda er kortlögð með kóðun á djúpviðtölum sem Malterud mælir með og notuð blönduð aðferð Giorgis með einstaklinga og hópa. Niðurstöðurnar gáfu kortlagningu samfélagsmiðla í sjö þemu út frá reynslu frumkvöðla. Þemun eru auðlindir/virði, óvissuþættir, markaður, startup/byrjunarfasi, framtíðarrekstur, aðrir samfélagsmiðlar og bakgrunnur sem var skipt uppí tvö undirþemu vegna umfangs þeirra en það var bakgrunnur frumkvöðla og bakgrunnur hugmyndar. Mettun á upplýsingum virðist hafa verið náð með Giorgis aðferðarfræðinni og hagnýtar upplýsingar komust upp á yfirborðið. Lykilorð: Samfélagsmiðlar - Markaðssetning - Kortlagning - Notendur - Teymi – Frumkvöðlar - Eigindleg rannsókn - Umtal - Virði - Veirumarkaðssetning

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Logi Eldon Geirsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18953
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18953

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Logi Eldon Geirsson 1982-. Alþjóðavæðing samfélagsmiðla : greining, kortlagning og samanburður á helstu einkennum við uppsetningu á samfélagsmiðlum út frá sjónarmiðum frumkvöðla.. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18953