Back to results

Bifröst University

Netverslun Íslendinga : hversvegna kjósa íslendingar að versla við netverslanir?

Abstract

dc:description.abstract

Netverslun er ekki ný af nálinni en frá því á tíunda áratug síðustu aldar hafa neytendur getað verslað vörur á internetinu og fengið þær sendar upp að dyrum. Á síðustu árum hefur netnotkun aukist töluvert á Íslandi og tengist tæplega 97% þjóðarinnar á aldrinum 16 til 74 ára internetinu árið 2013 samkvæmt Hagstofu Íslands. Aftur á móti er netverslun Íslendinga í lægra lagi ef miðað er við önnur Norðurlönd. Á Íslandi versluðu tæplega 56% Íslendinga við netverslun árið 2013 en á Norðurlöndunum er hlutfallið á bilinu 65% til 77%. Neytendahegðun er mismunandi eftir einstaklingum og eru margar breytur sem hafa áhrif á neytendahegðun einstaklings. Þessar breytur geta verið sálfræðilegar, félagslegar, hagfræðilegar og menningalegar. Kaupákvörðunarferli einstaklings er einnig mismunandi eftir því hvort um sé að ræða flókna kaupákvörðun eða svokallaða heuristic sem á sér stað þegar um er að ræða kaup á hlutum sem skipta einstaklinginn litlu máli. Ákvörðunartaka einstaklinga á internetinu er svipuð og um væri að ræða hefðbundnar búðir. Internetið gerir neytandanum þó kleift að geta rannsakað vöruna betur og borið hana saman við sambærilegar vörur hjá öðru fyrirtæki með litlum vandkvæðum. Höfundur sendi út könnun á fyrrum og núverandi nemendur við Háskólann á Bifröst þar sem þeir voru beðnir að svara nokkrum spurningum tengdum netverslun. Niðurstöður spurningakönnunar sem og rannsóknir höfundar leiddu í ljós að oftar en ekki skiptir verðlag mestu máli þegar kom að því að versla við netverslanir. Einfaldleikinn við netverslun ásamt því að geta verslað hvernær sem er sólarhrings hafði einnig mikil áhrif.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Fanný Lilja Hermundardóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18859
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18859

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fanný Lilja Hermundardóttir 1986-. Netverslun Íslendinga : hversvegna kjósa íslendingar að versla við netverslanir?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18859