Back to results

Bifröst University

Samspil landsréttar og tvísköttunarsamninga : hvað gerist ef landsrétti og tvísköttunarsamningi ber ekki saman

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um samspil landsréttar og tvísköttunarsamninga og hvað gerist ef þeim ber ekki saman. Fljótt á litið ætti ekki að þurfa að koma til árekstra milli þessara tveggja réttarkerfa þar sem þau gilda á mismunandi sviðum en samspil landsréttar og tvísköttunarsamninga getur verið flókið. Tvísköttunarsamningar eru gerðir á tveimur eða fleiri tungumálum og getur túlkun ákvæða milli tungumála aukið flækjustigið. Íslenskt réttarkerfi byggir á tvíeðliskenningunni sem þýðir að þegar Ísland gerist aðili að alþjóðasamningum þarf að innleiða þá svo þeir hafi gildi að landsrétti því þeir verða það ekki sjálfkrafa, líkt og hjá ríkjum sem byggja á eineðliskenningunni. Tvísköttunarsamningar hafa ekki verið sérstaklega innleiddir í íslenskan rétt með lögum eða öðrum hætti. Þeir öðlast þó gildi að þjóðarétti þegar samningarnir hafa verið fullgildir af báðum samningsríkjum.Tvísköttunarsamningar eru til að koma í veg fyrir að tekjur eins aðila verði skattlagðar oftar en einu sinni. Hættan á slíkri tvísköttun er alltaf fyrir hendi þegar starfað er í fleiri löndum en einu. Ávallt er leitast við að túlka innlend lög til samræmis við þjóðarétt en þó eru takmörk fyrir því hversu langt er hægt að ganga í að túlka lagaákvæði. Skynsamlegasti kosturinn er að lögfesta tvísköttunarsamninga því slíkt myndi gera réttarstöðuna ljósari og tryggja skattaðilum þann rétt sem tvísköttunarsamningum er ætlað að veita.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oddrún Helga Oddsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17460
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17460

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oddrún Helga Oddsdóttir 1981-. Samspil landsréttar og tvísköttunarsamninga : hvað gerist ef landsrétti og tvísköttunarsamningi ber ekki saman. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17460