Back to results

Bifröst University

Vald dómstóla til að kveða á um athafnaskyldu stjórnvalda : þegar sú athöfn sem um ræðir felur í sér beitingu á stjórnsýslulegu valdi

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta er á sviði einkamálaréttarfars, stjórnsýsluréttar, stjórnskipunarréttar og réttarheimsspeki og ber titilinn: Vald dómstóla til að kveða á um athafnaskyldu stjórnvalda, þegar sú athöfn sem um ræðir felur í sér beitingu á stjórnsýslulegu valdi. Þetta umfjöllunarefni vakti áhuga minn eftir að hafa skoðað dóm 151/1999 (táknmálstúlkur). Samkvæmt öllu sem ég hafði lært í einkamálaréttarfari var þessi dómur einfaldlega rangur, enda er hann á skjön við alla aðra dómaframkvæmd. Ég ákvað því að þetta væri eitthvað sem þyrfti að kanna betur, til að komast að því hvort að ég væri að misskilja eitthvað í fræðunum. Eftir að ég hóf rannsóknir á dómum varðandi þetta efni, svo og fræðiritum komst ég að því að hér var um einskonar togstreitu að ræða, milli 60. gr. stjórnarskrárinnar og 70. gr. hennar. Einnig var um togstreitu að ræða milli tveggja réttarsviða en það eru einkamálaréttarfar og stjórnsýsluréttur. Þessi mikla togstreita um málefnið er líklega ástæðan fyrir því að dómarar hafa getað rökstutt bæði að það væri á valdsviði þeirra, svo og að það væri utan valdsviðs þeirra að kveða á um athafnaskyldu stjórnvalda. Ég vil þakka konunni minn henni Hrafnhildi Árnadóttur fyrir ómetanlegan stuðning meðan á ritgerðaskrifum stóð. Einnig vil ég þakka henni sérstaklega fyrir málfarsyfirlestur og gagnlegar athugasemdir. Ég vil einnig þakka leiðbeinanda mínum Einari Karli Hallvarðsyni fyrir góða leiðsögn og mjög gagnlegar ábendingar. Það er von mín að þú, lesandi góður, skemmtir þér jafn vel við lestur ritgerðarinnar og ég gerði við skrif hennar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Steinar Ásgeirsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16891
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16891

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Steinar Ásgeirsson 1983-. Vald dómstóla til að kveða á um athafnaskyldu stjórnvalda : þegar sú athöfn sem um ræðir felur í sér beitingu á stjórnsýslulegu valdi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16891