Back to results

Bifröst University

Ákvarðanir um brottvísun á grundvelli 20. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga : könnun á stjórnsýsluframkvæmd

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta til ML-gráðu í lögfræði er á sviði stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar og ber titilinn: Ákvarðanir um brottvísun á grundvelli 20. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Könnun á stjórnsýsluframkvæmd. Markmið laga nr. 96/2002 um útlendinga er að hafa eftirlit með komu og för útlendinga og með dvöl útlendinga hér á landi í samræmi við stefnu stjórnvalda hverju sinni. Heimilt er að vísa útlendingi brott af landinu ef hann hefur gerst brotlegur við þau skilyrði sem nánar eru tilgreind í stafliðum a-d 1. mgr. 20. gr. laganna. Gildir 20. gr. útlendingalaga um þriðja ríkisborgara en það eru borgarar ríkja annarra en EES/EFTA ríkja. 2. mgr. 20. gr. útlendingalaga mælir fyrir um að ekki skuli ákveða brottvísun ef það, með hliðsjón af málsatvikum og tengslum útlendingsins við landið, mundi fela í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart honum eða nánustu ættingjum hans. Brottvísun fylgir ætíð endurkomubann til landsins síðar. Getur það gilt fyrir fullt og allt eða um tiltekinn tíma, en að jafnaði ekki skemur en þrjú ár, sbr. 3. mgr. 20. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur stjórnvaldsákvörðun um hvort útlendingi verði brottvísað. Eru þær ákvarðanir ekki birtar opinberlega. Því vaknaði áhugi hjá höfundi að kanna hvernig þessar íþyngjandi ákvarðanir eru teknar og á hvaða grundvelli. Ekki síður þótti höfundi vert að skoða þau sjónarmið sem liggja að baki mati á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi og ættingjum hans, þar sem lagaákvæðið felur í sér að um mjög matskennda þætti geti verið að ræða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálína Ingimunda Ásbjörnsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16888
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16888

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálína Ingimunda Ásbjörnsdóttir 1965-. Ákvarðanir um brottvísun á grundvelli 20. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga : könnun á stjórnsýsluframkvæmd. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16888