Back to results

Bifröst University

Smálán : skilningur og viðhorf háskólanema

Abstract

dc:description.abstract

Smálán eru ört vaxandi lán á íslenskum markaði. Fáar sem engar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi í tengslum við þau. Niðurstöður erlendra rannsókna benda til að neytendur hafi almennt litla þekkingu á smálánum og því hvernig þau virka. Viðhorf er almennt neikvætt en verður jákvæðara eftir því sem fólk kynnir sér starfsemina betur. Í þessari rannsókn er horft á neytendahlið starfseminnar með það fyrir augum að komast að því hver sé skilningur og viðhorf háskólanema til þessara lána. Höfundur nálgaðist efnið með það að leiðarljósi að hægt væri að skilja betur hvað búi að baki skoðunum einstaklinga. Með það í huga var valið að notast við eigindlega rannsóknaraðferð í formi einstaklingsviðtala og megindlega aðferð í formi spurningalistakönnunar. Tekin voru viðtöl við átta háskólanema og spurningalistakönnun lögð fyrir háskólanema í grunnnámi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í stuttu máli þær að almennt var ekki mikill skilningur á eðli smálána að ræða hjá viðmælendum. Þeir höfðu fæstir kynnt sér hvað er í boði. Hins vegar var nær undantekningarlaust mikil neikvæðni ríkjandi hjá þeim varðandi þessa tegund lána. Viðhorf og skilningur þessara einstaklinga er sambærileg við erlendar kannanir sem gerðar hafa verið á þessu sviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Sigurðsson Glad 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16177
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16177

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Sigurðsson Glad 1981-. Smálán : skilningur og viðhorf háskólanema. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16177