Bifröst University
Evrópusamvinnan : leið Íslands að þátttöku í starfi Félagsmálasjóðs Evrópu (ESF)
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á vegferð Íslands að Evrópusamvinnu á sviði velferðarmála sem hófst með aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu 2009. Eitt þeirra verkefna sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir í þessari vegferð er að gera framkvæmdaáætlun fyrir Félagsmálasjóð Evrópu (European Social Fund). Meginefni ritgerðarinnar er að greina þá vinnu sem unnin hefur verið s.l. 4 ár af íslenskum stjórnvöldum til að undirbúa slíka framkvæmdaáætlun. Til þess að slík greining sé mögulegt þarf að hefja vegferðina með því að varpa ljósi á þá hugmyndafræði, stefnur og strauma sem Evrópusambandið byggir sínar áætlanir á. Því eru skoðuð þau úrræði sem Evrópusambandið notar til þess að ná fram markmiðum sínum í velferðarmálum en þar gegna svokallaðir uppbyggingasjóðir (Structural Funds) lykilhlutverki. Þessir sjóðir hafa mismunandi markmið eftir ýmsum málaflokkum en áhersla lögð á samþættingu í vinnubrögðum til þess að sameiginleg framtíðarsýn Evrópusambandsins um snjallan, sjálfbæran og samþættan vöxt og markmið „Europe 2020“ nái fram að ganga. Á grundvelli þessa efniviðs er síðan lýst þeirri leið sem íslensk stjórnvöld hafa markað við gerð framkvæmdaáætlunar fyrir Félagsmálasjóð Evrópu (ESF). Gerð er grein fyrir þeim áföngum sem þegar hefur verið unnið að og skilgreindar hugsanlegar vörður og aðferðir sem hægt er að nota til að skila fullbúinni framkvæmdaáætlun í byrjun árs 2014. Vegferðinni við vinnslu áætlunarinnar er lýst sem lærdómsferli þar sem hinir ýmsu hagsmunaaðilar takast á við verkefni þar sem nákvæm leiðarlýsing liggur ekki alltaf fyrir, en gnægð verkfæra til úrlausna. Meistararitgerðin er afurð „skrifborðsrannsóknar“ (Secondary Research) sem felur í sér greiningu á miklu magni af birtu efni, svo sem fræðiritum, skýrslum, lögum og reglum, samhliða því sem greind eru vinnugögn sem höfundur hefur aðgang að starfa sinna vegna. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru að: Evrópusambandið er að þróa og styrkja áherslur sínar í nafni velferðar innan aðildarríkjanna. Stefnur, markmið og áætlanir í málaflokkum er snúa að velferð eru orðin samþætt í nafni heildarsýnar. Lærdómsferli á sér stað innan íslensku stjórnsýslunnar vegna umsóknar um aðild að ESB: er þá sérstaklega horft til þeirrar vinnu sem á sér stað við gerð framkvæmdaáætlunar fyrir Félagsmálasjóð Evrópu (ESF). Hagsmunaaðilar, þ.e. ríki, sveitarfélög og aðrir hagmunaaðilar sjá ávinning af þátttöku í þessu ferli
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þór Garðar Þórarinsson 1956-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16129
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16129