Bifröst University
Hvernig er hægt að auka virði íslenskra sjávarafurða á forsendum sjálfbærni, gegnsæi og hagkvæmni?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessa verkefnis er að kanna hvernig hægt sé að auka virði íslenskra sjávarafurða á forsendum sjálfbærni, gegnsæi og hagkvæmni. Undanfarin ár hefur umhverfisvitund vesturlandabúa aukist töluvert og eru neytendur orðnir meðvitaðri um hvaðan afurðir koma og hver framleiðir þær. Hér á landi ríkir fiskveiðistjórnunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærni, öflug tækni og mikil þekking og reynsla á sviði sjávarútvegsmála. Spurning er hvernig hægt sé að nýta þessa krafta til að auka virði afurðarinnar. Gerð var markaðskönnun í Bretlandi og Bandaríkjunum og kannað hvort mögulegur markaður væri fyrir viðskiptahugmynd sem byggist á sölu fiskafurða sem veidd eru á sjálfbæran hátt. Sérstæða hugmyndarinnar er að hanna rekjanleika forrit sem gerir neytendum kleyft að rekja afurðina á tæknilegan hátt. Tilgangur markaðskönnunnar var annarsvegar til að fá raunhæfar upplýsingar í gerð sölu- og fjárhagsáætlunar og hinsvegar að fá upplýsingar um markaðinn. Út frá fræðilegri umfjöllum, fjárhagsáætlun og markaðsrannsókn var lagt mat á það hvort viðskiptahugmyndin gæti átt sér stað í raunveruleikanum. Niðurstöður úr könnuninni voru sambærilegar fyrri könnunum sem snéru að viðhorfi neytenda til sjálfbærni, flest allir svarendur voru sammála því að þegar kemur að vali á sjávarfangi skiptir máli að velja sjálfbært. Niðurstöður benda til að markaður fyrir viðskiptahugmynd sem þessa gæti verið til staðar og mögulega er hægt að framkvæma hugmyndina á hagkvæman hátt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Katrín Pálsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16124
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16124